• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fyrsta rannsókn á launamun karla og kvenna frá því að lög um jafnlaunavottun tóku gildi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Forsætisráðuneytið undirritaði samning við Hagstofu Íslands um að gera rannsókn á launamun karla og kvenna. Um er að ræða fyrstu rannsókn á launamun karla og kvenna sem ráðist er í frá því að lög um jafnlaunavottun tóku gildi árið 2018. Dagsetning undirritunar er táknræn því í dag eru 45 ár liðin frá því að íslenskar konur lögðu niður vinnu, á kvennafrídaginn á kvennaári Sameinuðu þjóðanna árið 1975, til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna og krefjast jafnréttis i launum.

Dagurinn er jafnframt dagur Sameinuðu þjóðanna en þennan dag var stofnsáttmáli samtakanna staðfestur. Þess er vænst að rannsóknin gefi vísbendingar um hvaða árangri jafnlaunavottun hefur skilað til að uppræta kynbundinn launamun. Niðurstöður rannsóknarinnar eiga að liggja fyrir á vormánuðum 2021. Síðasta rannsókn um launamun karla og kvenna náði til ársins 2016 og mikilvægt þykir að þróa áfram aðferðir til að reikna út á enn nákvæmari hátt óútskýrðan launamun kynjanna og mun ný rannsókn Hagstofunnar taka mið af því.
Lögfesting jafnlaunavottunar á Íslandi vakti heimsathygli og hefur orðið mörgum fyrirtækjum og stofnunum hvatning til góðra verka. Þó að innleiðingu jafnlaunastaðalsins sé ekki lokið á öllum vinnumarkaðnum er gagnlegt að taka stöðuna nú þegar stærstur hluti opinberra aðila og stærstu fyrirtækin á almenna markaðnum hafa lokið innleiðingu og fengið jafnlaunavottun.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Lögreglan lýsir eftir Gabríel Douane Boama, 20 ára,

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?