• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lægðin nálgast okkur í dag

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. mars 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Hugleiðingar veðurfræðings
Nú í morgunsárið er djúp lægð, 958 mb, stödd milli Íslands og Færeyja. Lægðin nálgast okkur enn frekar í dag og veldur hvassri norðanátt á landinu ásamt ofankomu sem einkum verður bundin við norðurhelming landsins. Önnur djúp lægð er nú langt suður í hafi, en sú er á leið til norðurs og verður komin fyrir austan land á morgun og viðheldur þar lágum þrýstingi og stífri norðanátt á landinu fram á helgi.

Í dag og á morgun má semsagt búast við stormi í vindstrengjum á norðvestan- og vestanverðu landinu, en minni veðurhæð austantil. Einnig er útlit fyrir talsverða ofankomu á norðurhelmingi landsins og viðbúið að færð spillist á fjallvegum og jafnvel víðar.

 Gul viðvörun : Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir og Strandir og norðurland vestra 

Veðuryfirlit
Skammt NV af Færeyjum er heldur vaxandi 959 mb lægð á hreyfingu NV. 1400 km SSV af Reykjanesi er vaxandi 967 mb lægð, sem hreyfist NA og síðar N á bóginn.

Veðurhorfur á landinu
Norðan og norðaustan 10-18 m/s, en 15-23 með deginum um landið norðvestan- og vestanvert. Úrkomulítið sunnanlands, annars víða slydda eða snjókoma, en rigning austast á landinu. Hiti kringum frostmark, en hiti að 5 stigum með suður- og austurströndinni.

Norðan 5-13 á morgun um landið austanvert, en 15-25 vestantil, hvassast á Vestfjörðum. Rigning eða snjókoma á Norður- og Austurlandi og hiti kringum frostmark. Stórhríð á Vestfjörðum og vægt frost. Þurrt að kalla sunnanlands og hiti að 5 stigum.
Spá gerð: 10.03.2021 05:49. Gildir til: 11.03.2021 00:00.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðan 10-15 m/s, en lengst af hvassara á Kjalarnesi. Skýjað að mestu og líkur á éljum, en yfirleitt þurrt síðdegis í dag og á morgun. Hiti um og yfir frostmarki. Dregur úr vindi seinnipartinn á morgun.
Spá gerð: 10.03.2021 05:29. Gildir til: 11.03.2021 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðan 5-13 m/s um landið austanvert, en 15-25 vestantil, hvassast á Vestfjörðum. Rigning eða snjókoma á Norður- og Austurlandi og hiti kringum frostmark. Stórhríð á Vestfjörðum og vægt frost. Þurrt að kalla sunnanlands og hiti að 5 stigum.

Á föstudag:
Norðan 10-18 og snjókoma norðan- og austanlands, en þurrt sunnan heiða. Vægt frost, en frostlaust sunnanlands yfir daginn.

Á laugardag:
Norðan 8-15 og lítilsháttar él, en léttskýjað á sunnanverðu landinu. Frost 1 til 7 stig.

Á sunnudag:
Norðlæg og austlæg átt 3-10. Skýjað með köflum og úrkomulaust að kalla. Áfram kalt í veðri.

Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp með slyddu eða rigningu síðdegis á sunnan- og vestanverðu landinu. Bjartviðri fyrir norðan og austan. Hlýnandi veður.

Á þriðjudag:
Suðlæg átt með vætu, en þurrt austanlands. Hiti 2 til 7 stig.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Andrew handtekinn

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?