• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gossvæðið er hættulegt – Tilkynning frá lögreglustjóra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. apríl 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða

Tilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum: Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum neðan þjóðvegar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er rálagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi. Einnig getur verið yfirborðsmengun í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Yfirborðsmengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina.

Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:

Spá veðurvaktar um veður og gasdreifingu í dag, þriðjudag.

Í dag er útlit fyrir sunnan 3-8 m/s og berst þá gasmengunin til norðurs, einkum yfir Vatnsleysuströnd og gæti þar náð styrk sem er óhollur fyrir viðkvæma.

Frá miðnætti til hádegis (00-12) eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir hádegi hafi þetta í huga. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook síðu lögreglu og á vedur.is, heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Svæðið er ekki fyrir lítil börn, þau eru viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því útsett fyrir skaðlegum lofttegundum. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera.

Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
· Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
· Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
· Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
· Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

 

Umræða
Share16Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    126 deilingar
    Share 50 Tweet 32
  • Rústaði hjónabandinu, missti forræðið og reyndi sjálfsvíg

    43 deilingar
    Share 37 Tweet 3
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    834 deilingar
    Share 334 Tweet 209
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?