• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Setja verður Samherja stólinn fyrir dyrnar

,,Fyrirtæki sem hafa ekkert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu samfélagi og almannaheill. Fyrirtæki sem eru meðvituð um almannahag þurfa ekki „skæruliðadeild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið.“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. maí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Stöndum saman gegn spillingu

Íslandsdeild Transparency International vill að spornað verði við framgangi Samherja, undir framkvæmdastjórn Þorsteins Más Baldvinssonar, sem opinberast hefur almenningi enn frekar undanfarna daga. Íslandsdeild TI kallar eftir breiðfylkingu almennings, félagasamtaka, stéttarfélaga, samtaka uppljóstrara, fræðasamfélags, stjórnmálanna og allra þeirra sem vettlingi geta valdið gegn tilraunum fyrirtækisins og „skæruliða“ til að grafa undan samfélagssáttmálanum og gildum þeim er hann byggir á. Það er okkar allra að standa vörð um lýðræðið, samfélagið og tjáningarfrelsið, hvert á sínu sérsviði.

Ólíðandi er að fyrirtæki sem á alla sína starfsemi og auð að þakka heimild til nýtingar á sameiginlegri auðlind almennings nýti arðinn með yfirgangi gegn samfélaginu og stoðum þess. Starfsemi Samherja í Namibíu byggði að auki á velvild íslenskrar þróunarsamvinnu. Enn fremur hefur Samherji á engum tímapunkti sýnt vilja til umbóta heldur þvert á móti varið fé og vinnustundum í að grafa undan eftirlitsstofnunum, blaðamönnum og þar með samfélaginu öllu.

Skýrsla Wikborg Rein hefur enn ekki verið birt opinberlega. Reglur um stjórnarhætti og regluvörslu sem fyrirtækið tilkynnti um mitt ár 2020 hefur ekki verið fylgt eftir. Þá hefur Samherji heldur aldrei gefið út skýra yfirlýsingu um að uppljóstrarar og rannsakendur málsins njóti verndar gegn ofsóknum fyrirtækisins, eins og nýgildandi lög kveða á um. Framganga Samherja sýnir helst að stjórnendur félagsins rói öllum árum gegn tilraunum almennings á Íslandi og víðar til að komast til botns í málinu.

Fyrirtæki og einstaklingar sem sanna vilja sakleysi sitt stunda ekki ofsóknir gagnvart þeim sem rannsaka og upplýsa um meintar misgjörðir. Fyrirtæki sem hafa ekkert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu samfélagi og almannaheill. Fyrirtæki sem eru meðvituð um almannahag þurfa ekki „skæruliðadeild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið“.

Stjórnmálamenn og sérstaklega stjórnarliðar geta ekki lengur komið sér undan því að takast á við hið pólitíska og kerfislæga umhverfi sem umber svona framgöngu árum saman. Annað hvort eru þeir með almenningi í baráttunni gegn spillingu eða á móti með þögn, meðvirkni, aðgerðarleysi og seinagangi við að koma upp nútímalegum spillingarvörnum milli stjórnsýslu og viðskiptalífs. Stjórnmálin geta ekki lengur litið undan. Kvótahafar sem virða að vettugi alþjóðlegar skuldbindingar og siðareglur sem Ísland kvittar undir eiga ekki að geta treyst því að fá að halda í yfirburðastöðu sína. Það eru forréttindi að fá að fara með nýtingarrétt á takmörkuðum gæðum hafsins.

Hafi hlítingarnefnd Samherja í formennsku Björgólfs Jóhannssonar hlutverk umfram það að vera neðanmálslína í fréttatilkynningu liggur í augum uppi að nefndin verði kölluð saman til að undirbúa opinbera birtingu á umfangi og eðli aðgerða fyrirtækisins undanfarin ár í baráttunni gegn uppljóstrunum og rannsóknum á starfsemi Samherja er varða þau mál sem fjallað hefur verið um.

Augljóst er eftir uppljóstranir undanfarinna daga að Björgólfur er ekki fær um formennsku nefndarinnar eigi störf hennar á annað borð að vera trúverðug.

Fréttir af tilraunum Samherja til að hafa áhrif á forystu í samtökum launafólks er grafalvarlegt mál sem ekkert stéttarfélag í landinu getur látið hjá líða að fordæma. Íslandsdeild TI vill hvetja aðila eins og samtök blaðamanna og stéttarfélög, sem og félög sem tilheyra stærri heimssamtökum að kalla eftir samstöðu og aðstoð sinna hreyfinga og þrýsta á rannsókn og kröftugt viðbragð í þeim fjölda lögsaga sem framganga Samherja snertir. Íslandsdeild mun að sjálfsögðu gera slíkt hið sama.

Stöndum saman gegn spillingu.
Slástu í hópinn og hjálpaðu okkur að berjast gegn spillingu og veita aðhald. Íslandsdeild TI er hluti af rótgrónum regnhlífarsamtökum sem eru með deildir um allan heim. Þú getur lagt Íslandsdeild TI lið með því að styrkja samtökin með fjárframlagi. https://transparency.is/ver…/styrktu-starfid-med-framlagi/
Þú getur líka gerst félagi og greitt árgjald. http://transparency.is/vertu-med/skraning-i-samtokin/
Umræða
Share18Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?