• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kata mun hlaupa í tíu kílómetra hlaupi í ágúst

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. júlí 2021
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0
,,Ég skráði mig til leiks í dag og ég skráði mig líka á Hlaupastyrk. Það var erfitt að velja úr góðum málefnum – en ég ákvað að þessu sinni (því vonandi er þetta bara fyrsta skiptið af mörgum) að styðja við Píeta-samtökin. Flest þekkjum við líklega einhvern sem hefur svipt sig lífi – og öll viljum við koma í veg fyrir sjálfsvíg og styðja eftir fremsta megni við þau sem ganga í gegnum slíkar hugsanir“ Segir Katrín Jakobsdóttir sem hefur skráð sig í 10 km. hlaup í ágúst.
Katrín Jakobsdóttir hleypur með Þórunni Rakel Gylfadóttur

,,Fyrir um það bil ári meiddi ég mig á fæti á hlaupum sem er nú kannski ekki í frásögur færandi. Ekki uppgötvaðist alveg strax hvers eðlis meiðslin voru þannig að ég haltraði um bæinn í þeirri trú að ég væri tognuð. Ekki stoppuðu meiðslin mig í þeirri fyrirætlan minni að kenna yngsta syni mínum að hjóla almennilega (enda hann löngu kominn á þann aldur að eiga að kunna það en stundum er ekki tími fyrir allt). Þar sem ég haltraði með syni mínum á Ægisíðunni í þessu verkefni rakst ég á konu sem ég kannaðist við; Þórunni Rakel Gylfadóttur. Hún hafði nú töluverðar áhyggjur af fætinum enda kom síðar í ljós að um var að ræða sprungu í lærlegg (það er önnur löng saga sem ekki verður sögð hér) og ég var sett á hækjur í nokkrar vikur.

Þegar það kom í ljós hafði Rakel samband og bauð mér að þjálfa mig aðeins í hlaupum þegar ég færi af stað. Ég á það til að taka fólk á orðinu (þannig að fólk á að passa sig á því að gera mér svona góð tilboð) þannig að í haust hófust okkar æfingar. Og af því að Rakel er kona með metnað skoraði hún á mig að koma mér í þannig form að ég gæti hlaupið tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst. Nú finnst einhverjum þetta vafalaust ekki neitt svakalegt markmið en fyrir mig er þetta stórmál enda hafði ég líklega ekki hlaupið svo langt í 25 ár – reyndar fundist ég vera í toppformi þegar ég náði að hlaupa fimm kílómetra með herkjum. En núna er sá tími kominn að ég treysti mér til að segja frá þessu og fyrst og fremst er það hvatningu Rakelar að þakka sem hefur drifið mig út á sunnudagsmorgnum til að hlaupa og anda og hlæja. Og hún hefur gert það að verkum að ég trúi því að ég geti þetta. Og ef ekkert óvænt gerist mun ég hlaupa þessa tíu kílómetra í ágúst.

Ég skráði mig til leiks í dag og ég skráði mig líka á Hlaupastyrk. Það var erfitt að velja úr góðum málefnum – en ég ákvað að þessu sinni (því vonandi er þetta bara fyrsta skiptið af mörgum) að styðja við Píeta-samtökin. Flest þekkjum við líklega einhvern sem hefur svipt sig lífi – og öll viljum við koma í veg fyrir sjálfsvíg og styðja eftir fremsta megni við þau sem ganga í gegnum slíkar hugsanir. Það er mikilvægt að ræða þessi mál – orsakir sjálfsvíga og áhrifin sem þau geta haft á þau sem eftir lifa. Tökum þau mál upp á borðið – það er fyrsta skrefið.“

 

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?