• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vöruviðskipti óhagstæð um 30,2 milljarða í júní

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Fluttar voru út vörur fyrir 58,7 milljarða króna fob í júní 2021 og inn fyrir 88,9 milljarða króna cif (82,5 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 30,2 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 23,3 milljarða króna í júní 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júní 2021 var því 6,9 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 173,5 milljarða króna sem er 4,4 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 10,5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júní 2021 jókst um 11,9 milljarða króna, eða um 25,5%, frá júní 2020, úr 46,8 milljörðum króna í 58,7 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 5,9 milljarða króna eða 29,2% samanborið við júní 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og kísiljárns. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,1 milljarð eða um 17,9%, munar þar mestu um aukið verðmæti uppsjávarfisks.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2020 til júní 2021, var 668,5 milljarðar króna og hækkaði um 63,4 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 10,5% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 47% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 7,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 11,4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 8,3 milljarða, eða 31,5%, á sama tímabili eða um 5% af heildarútflutningi.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 8,8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 88,9 milljörðum króna í júní 2021 samanborið við 70,1 milljarð í júní 2020. Verðmæti flutningstækja (þar með talið skip og flugvélar) jókst um 5,3 milljarða (44,5 %), verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 4,1 milljarð króna (18,8%) og verðmæti eldsneytis jókst um 3,0 milljarða króna (105,3%) Aðrir liðir tóku minni breytingum.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 842 milljarðar króna og jókst um 67,8 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 8,8% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í eldsneyti.

Hafa má í huga að gengisvísitala1 hækkaði um 7,4% á þessu tólf mánaða tímabili en gengið styrktist aftur á móti um 3,9% á milli júní 2020 og 2021. Hér er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors árs Júlí 2019 – júní 2020 Júlí 2020 – júní 2021 Breyting frá fyrra tímabili (%)
Útflutningur alls fob 605,1 668,5 10,5
Sjávarafurðir 260,4 290,2 11,4
Landbúnaðarafurðirþ.m.t. fiskeldi 32,3 42,8 32,5
Iðnaðarvörur 294,3 316,4 7,5
Aðrar vörur 18,1 19,1 5,6
Innflutningur alls cif 774,2 842,0 8,8
Matvörur og drykkjarvörur 80,0 86,5 8,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 225,9 256,5 13,5
Eldsneyti og smurolíur 79,9 48,0 -39,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 167,1 192,5 15,2
Flutningatæki 105,3 109,8 4,3
Neysluvörur ót.a. 115,6 148,1 28,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 0,4 0,5 21,3
Vöruskiptajöfnuður -169,1 -173,5

1 Heimild: Seðlabanki Íslands- Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis – viðskiptavog þröng)

Talnaefni

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stórbruni í Hafnarfirði

    Stórbruni í Hafnarfirði

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Salmonella í fæðubótarefni

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    79 deilingar
    Share 32 Tweet 20
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?