• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Um 150 milljarða glataður virðisauki í ferðaþjónustu árið 2020 vegna COVID-19

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

-Virðisauki á hvern ferðamann dregist saman allt frá 2010 og ferðaþjónustan illa í stakk búin til að takast á við niðursveiflu

Síðastliðið haust samdi Ferðamálastofa við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) um að rannsaka áhrifaþætti aðlögunarhæfni og seiglu í ferðaþjónustu. Reynslan sýnir að ferðaþjónusta getur verið sveiflukenndur atvinnuvegur. Það er ekki aðeins að grunneftirspurnin geti verið breytileg heldur geta náttúruhamfarir eins og eldgos, innlendar efnahagsaðstæður eins og gengi krónunnar, kjarasamningar og verkföll og heimsfaraldrar eins og Covid-19 valdið verulegum sveiflum í bæði umsvifum í greininni og afkomu. Það er því rík ástæða til að hugleiða hvernig ferðaþjónustan getur mætt þessum breytileika og staðið erfið tímabil af sér. Er það megintilgangur rannsóknarinnar.

Verkefnið er hluti af rannsóknaráætlun Ferðamálastofu 2021-2023 en tilgangur hennar er fyrst og síðast að efla þekkingu á ferðaþjónustu sem lykilatvinnugrein og samspili hennar við aðrar megingreinar í íslensku efnahagslífi. Slík þekking og samsvarandi greiningartæki eru mikilvægur grundvöllur stefnumótunar og ákvarðanatöku stjórnvalda, fyrirtækja í greininni og fjármögnunaraðila þeirra.

RMF hefur nú skilað Ferðamálastofu áfangaskýrslu í verkefninu, sem er í viðhengi. Um er að ræða ítarlega samantekt og greiningu á þeim gögnum sem til eru og nýta má sem tölulegan grundvöll meginályktana rannsóknarinnar. Rannsókn RMF stendur út þetta ár. Henni lýkur með ítarlegri skýrslu um rannsóknarefnið og kynningu rannsóknaraðila á mikilvægustu niðurstöðum á vegum Ferðamálastofu, sem kynnt verður betur síðar.

Í skýrslu RMF kemur m.a. fram að:
• Ætla má að tapaður virðisauki í ferðaþjónustu vegna COVID-19 á árinu 2020 hafi verið um 149 milljarðar króna, m.v. að fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi hefði annars verið um 2 milljónir eins og spáð var.
• Tímabilið 2010-2016 var vöxtur í virðisauka ferðaþjónustunnar en á honum hægðist eftir 2016. Virðisauki og hagnaður á hvern ferðamann hafa dregist saman á ári hverju allt frá 2010 og til 2017 og 2018. Ljóst er því að ferðaþjónustan var rekstrarlega í erfiðri stöðu og illa í stakk búin að takast á við niðursveiflu í hagkerfinu, hvað þá þann mikla samdrátt í eftirspurn sem varð í kjölfar COVID-19.
• Ferðaþjónustufyrirtæki fengu úthlutað 65% af þeim stuðningi sem ætlaður var rekstraraðilum (utan sjálfkrafa frestunar á skattgreiðslum) á árinu 2020. Rúm 44% af hlutabótum ársins 2020 fóru til einstaklinga í ferðaþjónustu. Hæst var hlutfallið hjá þeim sem störfuðu við veitingaþjónustu eða 14,4% og síðan til þeirra sem unnu á gististöðum eða 12,7%. Mestu fjármagni í tengslum við mótvægisaðgerðir til rekstraraðila ferðaþjónustunnar árið 2020 var úthlutað til fyrirtækja í gistirekstri eða 19,2%.
• Samdráttur í tekjum veitingahúsa var ekki eins mikill og í öðrum greinum ferðaþjónustunnar og hluti veitingastaða á landsbyggðunum upplifði sitt besta sumar árið 2020.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?