• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Málefni fatlaðs fólks sett í nefnd, sem og fullorðinna með geðrænan vanda

Rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. september 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda. Er nefndin skipuð samkvæmt ályktun Alþingis frá 12. júní sl.

Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, verður formaður nefndarinnar en auk hennar verða í nefndinni Una Björk Ómarsdóttir, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, og Páll Biering, prófessor emeritus við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands sem er tilnefndur af Landssamtökunum Geðhjálp og Landssamtökunum Þroskahjálp.

Nefndin mun safna saman ítarlegum upplýsingum um starfsemi stofnana fyrir fullorðið fatlað fólk og fullorðna með geðrænan vanda og leggja mat á afmörkun, umfang og markmið rannsóknarinnar. Þá mun nefndin afmarka þær rannsóknarspurningar sem lagðar verða til grundvallar rannsókninni. Þá mun nefndin greina kosti og galla tveggja rannsóknarleiða, annars vegar rannsóknar stjórnsýslunefndar á vegum Stjórnarráðsins og hins vegar rannsóknar rannsóknarnefndar í samræmi við lög um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011.

Nefndin skal skila forsætisráðherra niðurstöðum sínum eigi síðar en 1. mars 2022. Samkvæmt ályktun Alþingis átti nefndin að skila niðurstöðum sínum 1. desember 2021 en ákveðið var í samráði við Landssamtökin Geðhjálp og Landssamtökin Þroskahjálp  að framlengja skilafrestinn vegna umfangs verkefnisins.

Umræða
Share177Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?