Svikasímtöl
,,Erum undanfarið búin að fá nokkrar tilkynningar frá fólki sem er búið að fá símtöl úr erlendu númeri þar sem að viðkomandi er sagður að vera eigandi af bifreið sem hafi lent í umferðaróhappi.
Síðan er sá sem hringt var í, spurður hvort hann vilji nokkuð fara í gegnum tryggingarnar og beðinn um nánari upplýsingar.
Sá sem hringir verður mjög reiður ef því er neitað og hótar að gera meira mál úr þessu. Sá sem hringir hefur talað íslensku en mjög bjagaða að sögn tilkynnanda.“ Segir lögreglan á Norðurlandi í tilkynningu um svikasímtöl.
Umræða