Vegna alvarlegra ásakana um starfshætti við reikningsgerð til SÍ í heimsfaraldri. Enginn kostnaðarauki ríkis varð til vegna aðgerða SÁÁ í göngudeild 2020
Starfsmenn SÁÁ mótmæla harkalega þeim ásökunum sem nú berast frá SÍ varðandi þjónustu sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar inntu af hendi á tímabilum þar sem ítrustu sóttvarna var krafist af yfirvöldum vegna heimsfaraldurs.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafar sinna árlega þúsundum einstaklinga í hópúrræðum í göngudeild. Slíkum hópúrræðum, óbólusettra skjólstæðinga, var ekki forsvaranlegt að halda úti í ströngustu samkomutakmörkunum vegna smithættu af Covid.
Í þeim tilgangi að halda meðferðarsambandi, styrkja bata og koma í veg fyrir bakslag á meðan á takmörkunum stóð, lögðu starfsmenn SÁÁ á sig mikla vinnu á stuttu tímabili við að hringja út í skjólstæðinga og veita þeim upplýsingar, ráðgjöf og stuðning. Er þessi vinna, sem unnin var af heilindum og í góðri trú, nú gerð tortryggileg og jafnvel saknæm. Það er rétt að halda því til haga, að enginn fjárhagslegur ávinningur fyrir SÁÁ eða starfsfólk samtakanna, umfram gildandi samninga, gat hlotist af þessari vinnu. Er með þeirri málsmeðferð SÍ gróflega vegið að starfsheiðri, trúverðugleika og trausti starfsmanna og starfsemi SÁÁ.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafar, og allir starfsmenn SÁÁ, munu nú sem áður setja hagsmuni skjólstæðinga sinna í fyrsta sæti og kappkosta að veita áfram bestu mögulegu þjónustu á krefjandi tímum heimsfaraldurs.
Starfsfólk SÁÁ