• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 30. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

,,Vinna sem unnin var af heilindum og í góðri trú, gerð tortryggileg og jafnvel saknæm“

Yfirlýsing starfsfólks SÁÁ

ritstjorn by ritstjorn
18. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Vegna alvarlegra ásakana um starfshætti við reikningsgerð til SÍ í heimsfaraldri. Enginn kostnaðarauki ríkis varð til vegna aðgerða SÁÁ í göngudeild 2020

Starfsmenn SÁÁ mótmæla harkalega þeim ásökunum sem nú berast frá SÍ varðandi þjónustu sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar inntu af hendi á tímabilum þar sem ítrustu sóttvarna var krafist af yfirvöldum vegna heimsfaraldurs.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafar sinna árlega þúsundum einstaklinga í hópúrræðum í göngudeild. Slíkum hópúrræðum, óbólusettra skjólstæðinga, var ekki forsvaranlegt að halda úti í ströngustu samkomutakmörkunum vegna smithættu af Covid.

Í þeim tilgangi að halda meðferðarsambandi, styrkja bata og koma í veg fyrir bakslag á meðan á takmörkunum stóð, lögðu starfsmenn SÁÁ á sig mikla vinnu á stuttu tímabili við að hringja út í skjólstæðinga og veita þeim upplýsingar, ráðgjöf og stuðning. Er þessi vinna, sem unnin var af heilindum og í góðri trú, nú gerð tortryggileg og jafnvel saknæm. Það er rétt að halda því til haga, að enginn fjárhagslegur ávinningur fyrir SÁÁ eða starfsfólk samtakanna, umfram gildandi samninga, gat hlotist af þessari vinnu. Er með þeirri málsmeðferð SÍ gróflega vegið að starfsheiðri, trúverðugleika og trausti starfsmanna og starfsemi SÁÁ.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafar, og allir starfsmenn SÁÁ, munu nú sem áður setja hagsmuni skjólstæðinga sinna í fyrsta sæti og kappkosta að veita áfram bestu mögulegu þjónustu á krefjandi tímum heimsfaraldurs.

Starfsfólk SÁÁ

Discussion about this post

  • ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Eitt dauðsfall er of mikið

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?