Talsvert af tilkynningum hafa borist af snjóflóðum af mannavöldum (vélsleðum), síðustu daga. Þetta eru nokkuð þykkir flekar sem hafa farið af stað sem brotna á lagmótum við gamalt hjarn undir.
Talsverður snjór hafur safnast á landinu í hvössum vindi og eru vindflekar nú í flestum viðhorðum. Fyrri hluta vetrar voru frost/þýðu kaflar algengir og því er víða grjóthart hjarn undir nýja snjónum.
Mikið frost næstu daga getur viðhaldið veikleikanum í snjónum og jafnvel gert hann enn veikari þar sem köntunar ferli á sér stað við lagmót í snjónum.
Umræða