Veðrið í gær og nótt olli mikilli áraun á flutningskerfi Landsnets og víðtækar truflanir urðu á Suðurlandi, Vesturlandi og á Vestfjörðum. Frá því klukkan fjögur í gær hafa um tuttugu línur farið út og sumar þeirra nokkrum sinnum. Sjö línur eru enn bilaðar eftir nóttina og viðgerðir að hefjast.
Truflununum fylgdi rafmagnsleysi á ákveðnum svæðum og önnur voru keyrð á varaafli. Tjón varð í Laxárvatnslínu þar sem stæður skemmdust og í Selfosslínu 1 er brotin þverslá. Verið er að fara yfir aðrar línur og það á eftir að koma í ljós hvort um meiri skemmdir er að ræða.
Um tíma í gærkvöldi var rafmagnslaust á Vesturlandi og Vestfjörðum en Vestfirðir eru enn keyrðir á varaafli. Undir morgun var rafmagnslaust á Suðurlandi og Vestmanneyjum. Varaafl var ræst og verið er að vinna í að koma rafmagni á aftur.
Tvær stórar línur, Sultartangalína 3 og Búrfellslína 3, sem liggja inn til höfuðborgarsvæðisins fóru út í gærkvöld en því fylgdi ekki rafmagnsleysi en önnur þeirra, Sultartangalína, er enn úti. Líklega er bilun á línunni þar sem hún liggur yfir hálendi og þarf sértæk tæki til að fara á staðinn en veður er mjög slæmt á svæðinu.
Spennuhögg kom á kerfið og fylgdi því flökt á ljósum. Skerða þurfti flutning til stórnotenda í kjölfarið. Flogið var með Landsgæslunni í nótt til að skoða línuna en við urðum frá að hverfa vegna veðurs. Línan verður skoðuð aftur í dag þegar færi gefst.
Fram undan eru viðgerðir á þeim sjö línum sem enn eru bilaðar eftir nóttina. Ekki er vitað hvað þær viðgerðir munu taka langan tíma en ljóst er að tjón hleypur á tugum milljóna.