• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þurfum að efla vernd lífríkis, hafs og loftslags

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Margt hefur áunnist á hálfri öld í umhverfisvernd í heiminum, en nauðsynlegt er að efla aðgerðir til muna til að mæta áskorunum, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í ávarpi á viðburði Sameinuðu þjóðanna í Naíróbí í Kenía í lok síðustu viku. Ávarpið var flutt á sérstökum viðburði í tilefni 50 ára afmælis Umhverfisstofnunar S.þ. (UNEP), þar sem ráðherrar voru beðnir um að meta árangur starfsins til þessa og nefna helstu áskoranir fram undan.

Guðlaugur Þór sagði að UNEP hefði í starfi sínu tekist að vinna margvíslegt gagn í umhverfisvernd, ekki síst með því að tengja saman umhverfismál og efnahagslega og félagslega þróun. „Þetta eru ekki andstæður – til þess að bæta hag mannkyns þurfum við að nýta gjafir náttúrunnar af skynsemi og taka mark á hættumerkjum um ástand Jarðar.“

Ráðherra benti á árangur sem hefði náðst við að stöðva eyðingu ósonlagsins og draga úr mengun hafanna af völdum þrávirkra lífrænna efna. Mikið mætti læra af slíkum dæmum, s.s. varðandi nauðsyn á góðri vísindaþekkingu, skýrum markmiðum og víðtækri samvinnu. Ríkisstjórnir þurfi að setja markmið og vera leiðandi, en nauðsynlegt sé líka að virkja einkageirann, sem leggi til skapandi þekkingu og framkvæmdakraft. Konur þurfi enn fremur að hafa sama rétt og karlar, svo þær geti beitt sér af fullum krafti í umhverfisvernd.

Varðandi helstu áskoranir fram undan nefndi Guðlaugur Þór loftslagsvána, auk verndar lífríkisins og hafanna. Nauðsynlegt sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og notkun jarðefnaeldsneytis og nota í staðinn hreina og endurnýjanlega orku. Nýsköpun í loftslagsvænni tækni sé nauðsynleg, ekki síst í föngun og niðurdælingu kolefnis; Ísland vinni að slíkum verkefnum en nauðsynlegt sé að efla slíkar aðgerðir á heimsvísu.

Stöðva þurfi eyðingu verðmætra vistkerfa og endurheimta þau sem séu sködduð eða eydd, þar á meðal skóga og votlendi. Einnig þurfi að vernda höfin og nýta auðlindir þeirra á sjálfbæran hátt. Sagði ráðherra væntanlegan nýjan alþjóðasamning um plastmengun vera mikilvægt skref í þá átt, en að einnig þurfi að draga úr og stöðva súrnun hafsins.

Umræða
Share10Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mokveiði en strandveiðibátar mega ekki veiða

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?