Miðað við stöðuna eins og hún er núna er líklegt að verðlækknair séu í kortunum. Hrár bensínlítri á heimsmarkaði kostar um 110 krónur á Norður-Evrópu markaði. Í desember var meðalverðið í kringum 85 krónur. Þetta kemur fram í viðtali við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, á mbl.is.
Miklar sveiflur hafa verið á heimsmarkaðsverði upp á síðkastið en hækkanir ollu því að lítrinn af bensíni og díselolíu náðu yfir 300 krónum hér á landi þann níunda mars.
Eins og FÍB hefur greint frá gripu stjórnvöld á Írlandi til ráðs á dögunum að lækka tímabundið skatta á eldsneyti og nú hafa stjórnvöld í Svíþjóð farið að foræmi Íra og lækkað skatta á eldsneyti. Þá hafa stjórnvöld á Nýja Sjálandi ákveðið að lækkað skatta á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkandi eldsneytisverðs á almenning í landinu. Stjórnvöld í fleiri löndum íhuga að grípa til sömu aðgerða.
FÍB sendi áskorun til stjórnvalda í síðustu viku þar sem kallað er eftir að stjórnvöld dragi tímabundið úr skattheimtu á olíu til að koma í veg fyrir verðbólguskot og lágmarka skaðleg áhrif á þjóðlífið. Enn sem komið er bólar ekkert á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda í þessum efnum.