• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 27. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíðarveg sem var opinn

Veginum var ekki lokað fyrir umferð fyrr en eftir að snjóflóð féll.

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Ég keyri aldrei þessa stórhættulegu leið þegar viðvaranir eru í gangi“

Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíðarveg um tíuleytið í gærkvöldi. Hlíðin var lokuð í nótt en opnuð að nýju klukkan sjö í morgun, eftir að búið var að ryðja veginn. Veginum var ekki lokað fyrir umferð fyrr en eftir að snjóflóð féll. Að minnsta kosti einn bíll fór út af veginum að sögn Rúv.

Munaði litlu að bíll færi fram af brúninni

Dagbjört Hjaltadóttir, íbúi Súðavíkur, greinir frá því á Facebook að hún hafi verið að aka hlíðina í gær þegar snjóflóðið féll en náði að aka í gegnum það. „Fyrir nokkrum mínútum keyrði ég yfir snjóflóð á Súðavíkurhlíðinni. Engin skilaboð komu frá Vegagerðinni í dag en hlíðin öll var komin á hreyfingu þegar ég kom af söngæfingu á Ísafirði í kvöld. Fólk í bíl á norðurleið hafði keyrt útaf þegar þau komu skyndilega að flóðinu en ljósin frá bílnum gerðu það að verkum að ég sá ekki flóðið fyrr en of seint – og það eina að gera að nauðhemla og keyra inn í flóðið eða gefa í – sem ég gerði og skautaði yfir. Allt í kring mátti heyra snjóbolta rúlla niður hlíðarnar í myrkrinu og þarna dreif að fleiri bíla frá báðum hliðum. Ég keyri aldrei þessa stórhættulegu leið þegar viðvaranir eru í gangi en rétt á meðan ég skrifa þessar línur fæ ég sms frá Vegagerðinni um búið sé að loka hlíðinni! Kræst!“ Segir Dagbjört Hjaltadóttir.

Ungmenni sem voru á leiðinni frá Súðavík höfðu aftur á móti farið út af vegna flóðsins. „Þau sáu örugglega flóðið og reyndu að sveigja frá því og lenda þá eiginlega í flóðinu við endann á því, þar sem það hafði náð yfir veginn. Þau fóru sem betur fer ekki fram af en það munaði ekki miklu, þau voru þarna á brúninni bara, og svo var bara bratt niður í fjöruna fyrir neðan.“

 

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir  þremur gróðurhúsum

    Lýst eftir þremur gróðurhúsum

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Um þrettán milljarða hagnaður hjá sjávarútvegsfyrirtæki

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Ríkið útvegi 50.000 kaupleiguíbúðir – leiga 100 til 300 þúsund

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Rif Restaurant er frábært veitingahús í hjarta Hafnarfjarðar

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Fékk Nóbelsverðlaun fyrir að benda á að kvótakerfið er rugl

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?