• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 15. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s

Sunnudagurinn verður víða blautur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag verður hæg sunnanátt. Svæði með lítilsháttar rigningu eða súld er á norðurleið yfir vestanverðu landinu en þurrt verður í öðrum landshlutum. Hiti fer upp í 3 til 8 stiga en á Austfjörðum verður hiti nálægt frostmarki. Laugardagurinn byrjar líka með rólegri sunnanátt og dálitlum skúrum eða éljum við norðurströndina. Eftir hádegi verður vaxandi suðaustanátt og rigning eða súld sunnan- og vestanlands. Hiti 4 til 9 stig en eins og áður heldur svalara fyrir austan. Sunnudagurinn verður víða blautur. Rigning í fyrstu, skúrir síðdegis. Hiti breytist lítið. Kólnandi veður eftir helgina og sums staðar snjókoma eða él og hiti um eða undir frostmarki.

Veðuryfirlit
150 km N af Færeyjum er 1018 mb smálægð sem þokast A. Um 250 km V af Írlandi er 1028 mb hæð sem mjakast SA. 700 km S af Hvarfi er 979 mb lægð á norðurleið.

Veðurhorfur á landinu
Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og dálítil væta á vestanverðu landinu en birtir upp norðaustan- og austanlands. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn en nálægt frostmarki á Austfjörðum. Hæg breytileg í fyrramálið og þurrt, en dálitlir skúrir eða él um landið norðanvert. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Gengur í suðaustan 8-15 m/s seinnipartinn með rigningu og súld vestantil.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg suðlæg átt og dálítil væta af og til en léttir til eftir hádegi. Hægt vaxandi suðaustanátt á morgun, þykknar upp og fer að rigna síðdegis. Hiti 2 til 6 stig.
Spá gerð: 01.04.2022 05:19. Gildir til: 02.04.2022 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Hæg breytileg átt framan af degi og þurrt, en dálitlir skúrir eða él um landið norðanvert. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Gengur í suðaustan 8-15 m/s seinnipartinn með rigningu og súld vestantil.

Á sunnudag:
Suðlæg eða breytileg átt 5-13 og víða rigning, en slydda á Austurlandi. Hiti frá 1 stigi við austurströndina, upp í 8 stig syðst. Norðlægari og kólnar með snjókomu norðanlands um kvöldið, en styttir upp syðra.

Á mánudag:
Norðan 8-15, él og vægt frost. Bjartviðri sunnan heiða og hiti 1 til 6 stig yfir daginn.

Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 og dálítil él, en þurrt um landið vestanvert. Frost 1 til 7 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.

Á miðvikudag:
Breytileg átt og víða þurrt og bjart veður, en skýjað að mestu og dálítil él norðantil. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og bjart og þurrt að mestu. Frost 0 til 5 stig yfir daginn en hiti yfir frostmarki sunnantil. Töluvert næturfrost.

Umræða
Share3Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    230 deilingar
    Share 92 Tweet 58
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?