Átta, þar á meðal einn á Íslandi, skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 8,8 milljónir króna í vinning, hinir miðarnir voru keyptir í eftirtöldum löndum; Noregi, Slóvakíu, tveir í Finnlandi og þrír í Þýskalandi. Íslenski miðinn var keyptur í Lottó-appinu.
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni og færast þeir yfir á föstudagsútdráttinn. Aðal vinningurinn stefnir í 9,1 milljarða króna.
Þrír voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund króna vinning hver, einn miðinn var keyptur í N1 á Sauðárkróki, einn í söluturninum Hraunbergi í Reykjavík og einn er í áskrift.
Umræða