• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland með formennsku í varnarmálum – heimsóttu herstöðina á Keflavíkurflugvelli

Ráðherrafundur Norðurhópsins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. júní 2022
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Staða og horfur í öryggismálum Norður-Evrópu voru í forgrunni umræðna á ráðherrafundi Norðurhópsins sem lauk í Reykjavík í dag. Viðbrögð við innrás Rússlands í Úkraínu, áhrif og afleiðingar til lengri tíma litið voru í brennidepli umræðna. Sjónum var einnig beint að breiðari áskorunum í öryggisumhverfinu og áhrifum þeirra á Norður-Evrópu og norðurslóðir.

Sameiginleg yfirlýsing var gefin út af fundinum þar sem fordæming ráðherranna á innrás Rússlands er undirstrikuð og samstaða andspænis þeirri ógn sem innrásin hefur skapað fyrir öryggi Evrópu og Norður-Atlantshafssvæðisins. Ísland fer nú með formennsku í Norðurhópnum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra var gestgjafi fundarins og stýrði fundi.

Ráðherrarnir heimsóttu öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og kynntu sér varnarinnviði þar. „Það er dýrmætt að auka innsýn þessara vinaþjóða okkar í það hvernig við Íslendingar högum okkar öryggis- og varnarmálum og hvert okkar framlag er á þessu sviði, í ljósi herleysisins. Það er líka mikilvægt vegna þeirrar stöðu sem nú er uppi í öryggismálum Evrópu og rædd var á fundinum. Sú staða snertir Ísland jafnt sem önnur ríki,“ segir utanríkisráðherra.

Herfloti NATO til Íslands

Norðurhópurinn er samráðsvettvangur tólf líkt þenkjandi Norður-Evrópuríkja í varnar- og öryggismálum. Öll Norðurlöndin eru aðilar að hópnum, Eystrasaltsríkin, Bretland, Holland, Pólland og Þýskaland. Formennska í hópnum er til sex mánaða og tekur Noregur við formennskuhlutverkinu af Íslandi á miðju ári.

Í gærkvöld undirrituðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Morten Bødskov, varnarmálaráðherra Danmerkur, samkomulag um aukið samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum. Samkomlag af þessu tagi var síðast undirritað milli utanríkisráðherra ríkjanna árið 2007, en grannríkjasamningar og/eða sameiginlegar yfirlýsingar eru einnig fyrir hendi við Kanada (2010), Noreg (2007), Bretland (2019) og Svíþjóð (2021).

https://gamli.frettatiminn.is/08/06/2022/herfloti-nato-til-islands/

Umræða
Share35Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    465 deilingar
    Share 186 Tweet 116
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?