• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Opnað fyrir rafræna umsóknir um jarðræktarstyrki og landgreiðslur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. júní 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir í Afurð (www.afurd.is) fyrir jarðræktarstyrki og landgreiðslur vegna framkvæmda á yfirstandandi ári. Umsóknum skal skilað eigi síðar en mánudaginn 3. október nk. Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf einnig að liggja fyrir árleg skýrsla um ræktun ársins á jord.is. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur. Auglýsing um jarðræktarstyrki í garðyrkju verður birt síðar í vikunni.

Sérstakar álagsgreiðslu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi eru reiknaðar á grunni hefðbundinni umsókna um jarðræktarstyrki og landgreiðslur. Þess vegna er mikilvægt að umsóknir liggi tímanlega fyrir svo greiða megi álagsgreiðslur vegna jarðræktarstyrkja og landgreiðslna í byrjun október 2022. Umsókn er forsenda fyrir álagsgreiðslu.

Allar umsóknir skulu standast skilyrði skv. reglugerð. Þar sem úttekt umsókna verður ekki lokið fyrr en 15. nóvember 2022 eru álagsgreiðslur greiddar með fyrirvara um að standast úttekt. Tekið verður á misræmi milli umsókna og úttekta sem kann að koma upp við greiðslu á árlegum jarðræktarstyrkjum og landgreiðslum í byrjun desember 2022.
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021 geta sótt um jarðræktarstyrki og landgreiðslur. Skilyrði sem bændur skulu kynna sér fyrir eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í jörð.

Jarðræktarstyrkir

Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs, og ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á því ári sem uppskorið er. Beit búpenings telst vera uppskera og nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis telst styrkhæf. Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári. Ekki telst styrkhæf ræktun ef kornrækt er eingöngu ætluð til að draga að gæsir til skotveiði, nema ef kornhálmur er sannarlega hirtur eða plægður niður. Önnur ræktun sem ekki er nytjuð til búskapar, þar með talin sáning í golfvelli, tjaldstæði o.s.frv. er ekki styrkhæf.

Landgreiðslur

Framlögum til landgreiðslna skal ráðstafa á ræktað land sem uppskorið er til fóðuröflunar og framleiðanda er heimilt að nýta. Framlög eru ekki greidd út á land sem eingöngu er nýtt til beitar. Þegar uppskorinn er hluti lands, sem sækja á um styrk út á, skal skrá sérstaklega þann fjölda hektara sem er uppskorinn.

Umsónir berist á https://afurd.bondi.is/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Sturluð staðreynd

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Óttast eldgos á Tenerife

    148 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Endurgreiðir kostnað vegna sjálfsábyrgðar verði tjón á ökutæki

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?