• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Katrín Jakobsdóttir á fundi norrænu forsætisráðherranna í Osló

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. ágúst 2022
in Erlent, Fréttir
A A
0

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í árlegum sumarfundi forsætisráðherra Norðurlandanna. Ráðherrarnir áttu einnig fund með Ólafi Scholz, kanslara Þýskalands. Fundirnir fóru fram í Osló en Norðmenn fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu.

Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Ólafur Scholz, kanslari Þýskalands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands.

Meginefni fundar norrænu forsætisráðherranna var annars vegar breytt staða í öryggis- og varnarmálum í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu og fyrirhugaðrar aðildar Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu.

Hins vegar voru málefni hafsins og græn orkuskipti til umræðu en í þeim málaflokkum eru Norðurlöndin í fararbroddi á alþjóðavettvangi. Rætt var um tengsl loftslagsmála og hafsins, mikilvægi bláa hagkerfisins og fæðu úr hafi, og hvernig Norðurlöndin geta aukið samstarf sitt í grænum tæknilausnum og kolefnisbindingu.

Á fundinum voru samþykktar tvær sameiginlegar yfirlýsingar. Annars vegar yfirlýsing um norrænt samstarf á sviði öryggis- og varnarmála og hins vegar yfirlýsing um málefni hafsins og græn orkuskipti.

Á fundi ráðherranna með kanslara Þýskalands var rætt um öryggismál í Evrópu í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu og fyrirhugaða aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Einnig var þar rætt um græn orkuskipti og orkuöryggi i í álfunni.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: „Á tímum sem þessum er mikilvægt að rækta norrænt samstarf enda sjaldan verið mikilvægara. Við Íslendingar fögnum ennfremur reglubundnu samtali Norðurlandanna og Þýskalands um mikilvægustu áskoranir samtímans, eins og loftslagsvána, orkumál og innrás Rússa í Úkraínu.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Brottvísanir erlendra fanga frá landinu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Tvö embætti forstjóra heilbrigðisstofnanna laus

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?