Emil í Kattholti, sagan af uppátækjasama og hjartahlýja drengnum sem allir elska, eftir hina ástsælu Astrid Lindgren, er sýnd á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Síðan Emil kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1963, hefur hann átt vísan stað í hjörtum barna jafnt sem fullorðinna um heim allan og er nafn hans samofið hugmyndum um lífsgleði og prakkaraskap.
Hér kynnumst við ekki bara Emil og Ídu, litlu systur hans, heldur einnig misþolinmóðum foreldrunum þeirra Ölmu og Anton, hinni seinheppnu Línu vinnukonu, sögukonunni Týtuberja Maju, vafasömu Ráðskunni á fátækrahælinu og síðast en ekki síst stórvini Emils, Alfreð vinnumanni.
Hér skortir ekkert á fjörið þegar leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiðir glæsilegan hóp leikara og tónlistarmanna inn í Smálöndin sænsku. Kattholt er heill heimur ævintýra og nú lifnar hann sem aldrei fyrr í söngvum og gleði á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Blaðamaður Fréttatímans mætti á þessa stórkoslegu sýningu ásamt fulltrúa yngri kynslóðarinnar, salurinn var fullsetinn og bæði börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega á þessari vönduðu og vel leiknu sýningu.
Bæði ungir og eldri leikarar fóru á kostum í hlutverkum sínum og mikil gleði og fagmennska einkenndi sýninguna út í gegn. Sviðsmyndin var á heimsmælikvarða og búningar.
Það er ekki annað hægt en að mæla með þessari frábæru sýningu sem er hin besta fjölskylduskemmtun og fær þar af leiðandi full hús stiga fyrir alla þætti sem snúa að leiklistinni.
Hér er hægt að skrá sig á póstlista Borgarleikhússins.