• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Matvælaráðherra setur af stað átaksverkefni vegna brottkasts

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. janúar 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Að beiðni Fiskistofu hefur Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, samþykkt styrk til að gera kerfisbundið mat á brottkasti á Íslandsmiðum. Hlutverk Fiskistofu er meðal annars að gæta að ábyrgri nýtingu sjávarauðlindarinnar.

Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), hefur gagnrýnt að takmörkuð gögn liggi fyrir um hversu miklum afla sé hent á Íslandsmiðum. Stofnunin áætlar að brottkast hafi verið 10,8% af alheimsafla árin 2010 til 2014. Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa átt í samstarfi um sýnatökur vegna stærðartengds brottkasts síðan árið 2001 og benda niðurstöður til að brottkast sé um 3-5%.

Í úttekt sem Ríkisendurskoðun gerði árið 2018 á starfsemi Fiskistofu kom m.a. fram að eftirlit stofnunarinnar með brottkasti væri veikburða og ómarkvisst og raunverulegur árangur þess óljós þar sem hvorki liggi fyrir skýr árangursmarkmið eða árangursmælikvarðar. Ríkisendurskoðun benti jafnframt á að Hafrannsóknastofnun hafi ekki rannsakað tegundaháð brottkast í rúman áratug og að auki hafi gagnasöfnun um lengdarháð brottkast dregist saman undanfarin ár. Einnig hefur eftirlit með brottkasti verið takmarkað og því erfitt að meta umfang þess.

Fiskistofa brást við gagnrýni FAO og Ríkisendurskoðunar og hóf eftirlit með drónum árið 2021. Við það fjölgaði brottkastsmálum ört eða úr u.þ.b. 10 málum á ári í 142 mál fyrir lok nóvember 2021.

Helstu markmið verkefnisins eru að áætla raunverulegt brottkast á Íslandsmiðum. Einnig að þróa aðferðafræði til að meta umfang brottkasts á íslenskum fiskimiðum og safna upplýsingum um umfang eftir veiðarfærum, svæðum og tegundum og meta áhrif brottkasts á stofnstærðir. Jafnframt er leitast við að öðlast skýrari sýn á umgengni við auðlindina og nýta þekkinguna til að fræða og draga úr brottkasti.

Ávinningur verkefnisins eru uppfærðar tölur um umfang brottkasts, réttari tölur varðandi brottkast inn í líkön um stofnstærð nytjastofna, bætt upplýsingagjöf um umgengni við auðlindina ásamt bættri meðvitund hagaðila um umgengni um auðlindina og þar með bættri hegðun og umgengni.

Verkefnið samræmist nýútkomnum bráðabirgðatillögum starfshópa Auðlindarinnar okkar þar sem lögð er áhersla á að allur veiddur afli komi í land og að setja þurfi hvata til að tryggja að svo verði.

„Það er mikilvægt að eftirlit með íslenskum sjávarútvegi verði leiðandi á heimsvísu og að áfram verði litið til Íslands sem fyrirmyndar hvað varðar umgengni um auðlindina,“ segir matvælaráðherra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?