• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skúrir en sumsstaðar slydduél eða él

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. febrúar 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Vestlæg átt í dag, víða strekkingur. Skúrir í flestum landshlutum en sumsstaðar slydduél eða él um norðanvert landið og þurrt suðaustanlands. Fremur milt í veðri, hiti 2 til 7 stig. Hægari norðlæg átt, styttir upp og frystir í kvöld en yfirleitt frostlaust með suðurströndinni.

Hæg suðlæg átt og hlýnar á morgun, fyrst vestantil á landinu með rigningu á köflum á þeim slóðum. Gengur í sunnan hvassviðri með samfelldari rigingu seint annað kvöld og slær jafnvel í storm á stöku stað aðra nótt, en hægari vindur og úrkomulítið um austanvert landið. Hlýnar um land allt, hiti 3 til 8 stig.

Um helgina er svo útlit fyrir áframhaldandi suðlægum áttum með vætu á köflum sunnan- og vestantil á landinu, annars þurrt, og hlýindi um land allt.

Veðurhorfur á landinu

Vestan og suðvestan 8-15 með morgnium en heldur hvassari austantil fram á hádegi. Víða skúrir eða él, en bjart að mestu suðaustantil. Dregur úr vindi og úrkomu seinnipartinn. Hiti 0 til 6 stig en kólnar í kvöld.

Sunnan 8-13 m/s á morgun og væta á köflum, en hægari og þurrt austantil á landinu. Hiti 0 til 7 stig, kaldast í innsveitum á Austurlandi. Hvessir um vestanvert landið seint annað kvöld.
Spá gerð: 23.02.2023 05:03. Gildir til: 24.02.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og dálítil væta með köflum, en þurrt austantil á landinu. Hiti 0 til 7 stig, kaldast í innsveitum á Austurlandi. Hvessir um vestanvert landið seint um kvöldið.

Á laugardag:
Suðlæg átt 13-20 m/s, hvassast vestantil. Víða rigning en þurrt um norðaustanvert landið. Hiti 3 til 9 stig.

Á sunnudag og mánudag:
Suðlæg átt, víða 10-15 m/s, og væta með köflum en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 8 stig.

Á þriðjudag:
Suðvestlæg átt og víða væta um vestanvert landið en bjart með köflum eystra. Kólnar heldur í veðri.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir vestlæga átt. Skúrir eða él en úrkomulítið um austanvert landið. Hiti um og yfir frostmarki.
Spá gerð: 22.02.2023 20:48. Gildir til: 01.03.2023 12:00.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?