• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gengur vel að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu að komast á vinnumarkað

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. febrúar 2023
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Vel hefur gengið að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu við að komast út á íslenskan vinnumarkað

Vel hefur gengið að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu við að komast út á vinnumarkað hér á landi. Yfir 800 flóttamenn frá Úkraínu hafa fengið atvinnuleyfi hér á landi frá innrás Rússlands í Úkraínu þann 24. febrúar 2022. Í dag er eitt ár liðið frá innrásinni.
Fyrsta flóttafólkið frá Úkraínu kom hingað til lands strax í lok febrúar 2022 og í mars sama ár flúðu vel yfir 500 manns frá Úkraínu til Íslands. Síðan þá hafa að meðaltali komið um 200 flóttamenn frá Úkraínu hingað til lands í hverjum mánuði. Fólkið fær dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. 
 

 

Af þeim tæplega 2.600 flóttamönnum frá Úkraínu sem Ísland hefur tekið á móti frá innrás Rússlands eru um 1.900 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára. Miðað við útgefin atvinnuleyfi má ætla að ríflega 42% þeirra séu þegar komin með vinnu. Hluti hópsins er þó tiltölulega nýkominn til landsins og taka þarf tillit til þess að ákveðinn tíma tekur að koma sér fyrir og ná áttum áður en atvinnuþátttaka getur hafist.

Flest atvinnuleyfin eru útgefin fyrir störf við ræstingar og í þvottahúsum. Þar á eftir fylgir þjónustufólk á heimilum og á veitingahúsum, verkafólk í iðnaði og fiskvinnslu, verkafólk í byggingariðnaði og afgreiðslu- og sölufólk.

„Við sjáum það að flest fólk frá Úkraínu sem kemur til okkar vill fara út á vinnumarkaðinn sem fyrst og leggur mikið á sig til að finna vinnu. Mörg þeirra eru til í að ganga í flest störf, þrátt fyrir hátt menntunarstig og starfsreynslu. Fólkið segist almennt fá jákvætt viðmót hér á landi og upplifa sig velkomið og öruggt,“ segir Guðlaug Hrönn Pétursdóttir, deildarstjóri flóttamannadeildar hjá Vinnumálastofnun. Deildin veitir flóttafólki sértæka þjónustu við atvinnuleit.

„Við sjáum líka að atvinnurekendur eru jákvæðir og ánægðir með starfsfólkið. Það er duglegt í vinnu, líkt og á við um flóttamenn sem hingað koma frá öðrum löndum,“ segir Guðlaug enn fremur.

Hjá flóttamannadeildinni fær fólk aðstoð við að fá vinnu, auk þess sem boðið er upp á samfélagsfræðslu, íslenskukennslu og önnur virkniúrræði. Á árinu 2022 fengu um 395 einstaklingar frá Úkraínu samfélagsfræðslu á vegum Vinnumálastofnunar og 419 fengu íslenskukennslu.

 
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    207 deilingar
    Share 83 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?