• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Háar arðgreiðslur til hluthafa tryggingafélaga á sama tíma og iðgjöld á almenning hækka

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. maí 2018
in Óflokkað
A A
0

 

Háar arðgreiðslur til hluthafa á sama tíma og iðgjöld á almenning hækka

Miklar verðhækkanir hafa orðið á bílatryggingum undanfarin ár en á tímabilinu 2014-2018 (apríl-apríl) hafa þær hækkað um 24% á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,38% og er þetta því um 16,5% hækkun umfram almennar verðlagshækkanir. Ýmsir ytri áhrifaþættir eru þó hagstæðir fyrir tryggingafélögin eins og miklar verðlækkanir á bílum (-13%) og varahlutum (-21%) auk þess sem umferðaslysum fer fækkandi. Þrátt fyrir þetta sjá tryggingafélögin ástæðu til að hækka verð á bílatryggingum en greiða á sama tíma út milljarða í arðgreiðslur.
Verð á bílum og varahlutum lækkar en verð á bílatryggingum hækkar
Styrking á gengi krónunnar hefur leitt til þess að verð á bílum hefur lækkað um 13,28% og verð á varahlutum um 21,93% frá árinu 2014 en verð á bílum og varahlutum eru meðal þeirra þátta sem hafa áhrif á verð  bílatrygginga. Það vekur því athygli hversu hratt tryggingar hafa hækkað á undanförnum árum miðað við þróun þessara áhrifarþátta.

(heimild: Hagstofa)
Bílslysum hefur hlutfallslega fækkað
Á síðustu árum hefur bílum í umferð fjölgað töluvert eða um 19,3% á árunum 2013-2017 og hefur umferð þar af leiðandi þyngst. Eins og má sjá á grafinu hefur slysum fjölgað lítillega síðustu ár en ef horft er lengra aftur má sjá að slys eru færri í dag en 2004-2007 og eru þau svipað mörg í dag og þau voru árið 2009. Í hlutfalli af þeim bílum sem eru á götunum eru færri slys á hvern bíl í dag en fyrir 10 árum. Með fleiri bílum á götunum hefur iðgjaldastofn tryggingafélaganna einnig stækkað sem þýðir að tekjur tryggingafélaganna af bílatryggingum eru hærri í dag en áður fyrr auk þess sem meðalakstur dregst saman og hafa iðgjöld á hvern kílómetra því hækkað.

(heimild: Samgöngustofa)

Mikill hagnaður og háar arðgreiðslur
Hagnaður tryggingafélaganna hleypur á milljörðum á hverju ári sem og arðgreiðslur til hluthafa. Viðskiptavinir tryggingafélaganna fá ekki að njóta góðs af jákvæðri afkomu tryggingafélaganna heldur rennur jákvæð afkoma beint í vasa hluthafa á sama tíma og viðskiptavinir sjá verðin hækka ár hvert.  Hér má sjá hagnað tryggingafélaganna í milljónum króna síðustu ár:

Arðgreiðslur þriggja stærstu tryggingafélaganna, í milljónum króna, fyrir rekstrarárið 2017:

Verðlagseftirlitið hvetur neytendur til að vera vakandi yfir verðhækkunum tryggingafélaganna og leita tilboða í tryggingar sínar.
https://gamli.frettatiminn.is/2018/02/05/tm-tryggingamidstodin-lang-dyrast-og-vis-odyrast-107-verdmunur-bilatryggingum/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    410 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?