• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 11. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Þjóðarsátt um okurvexti?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. september 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Flestar þjóðir glíma nú við verðbólgu. Seðlabankar þeirra allra hækka vexti. Það er allt eftir bókinni.

Sérstakar umræður sköpuðust um málið í þingsal í dag, að upplagi Samfylkingar sem beindi spurningum sínum að fjármálaráðherra. Báðir komu þeir sér fimlega undan því að ræða fílinn í stofunni. Hvers vegna Seðlabanki Íslands þarf að ákveða tvöfalt hærri vexti til þess að vinna gegn sömu verðbólgu og grannþjóðirnar? Og hvers vegna íslenska þjóðin fær ekki val um það hvort hún vill halda áfram að vera tilraunadýr þeirra sem hafa hag af því að halda í krónuna?

Við vitum að þessa spurningu má ekki bera upp í Sjálfstæðisflokknum. Hitt er nýtt að hún sé orðin að sérstöku feimnismáli í Samfylkingunni. Við þurfum eins og aðrar þjóðir að sætta okkur við tímabundnar vaxtahækkanir þegar kæla þarf hagkerfið. En við eigum ekki að sætta okkur við að vextir hér þurfi að vera tvöfalt hærri en í nágrannaríkjum okkar um alla framtíð. Þessi veruleiki okkar veikir samkeppnisstöðu landsins og kemur niður á fólki og fyrirtækjum. Á mannamáli þýðir þetta að við þurfum að vinna lengur til að skapa sömu verðmæti og fólkið í löndunum sem við berum okkur saman við. Það kemur þyngst niður á þeim hópum sem lökust hafa kjörin.

Þjóðarsátt um stöðuga mynt fyrir útvalda?

Gylfi Zoega, hagfræðingur og fyrrverandi fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabankans, skýrði þennan vanda með nokkuð skýrum hætti á dögunum. Við ein þjóða notum marga gjaldmiðla, en Seðlabankinn hefur bara stjórn á einum þeirra. Þess vegna þurfa vextir að vera tvöfalt eða þrefalt hærri hér en annars staðar. Ungt fólk í íbúðakaupum og lítil fyrirtæki bera þannig helmingi þyngri byrðar í baráttunni við verðbólguna en stóru útflutningsfyrirtækin sem gera upp í evrum. Venjulegt fólk hefði alveg sama hag af því að gera upp í evrum og stóru fyrirtækin, en hefur ekkert val. Þetta er ekki bara óréttlátt heldur óhagkvæmt. Og þetta þarf ekki að vera svona.

Þjóðarsátt um lægri laun?

Fjármálaráðherra kallar nú eftir þjóðarsátt og er það vel. En hann þarf að tala skýrt. Á þjóðarsáttin að vera eins og árið 1990, þegar hornsteinn hennar var stöðugt gengi eða á hún að snúast um það eingöngu að fólkið fái lægri laun? Þeirri spurningu hefur hann enn ekki svarað. Seðlabankastjóri hefur hins vegar með verkum sínum sýnt að hann hefur gefist upp á gömlu óverðtryggðu krónunni. Það gerði hann með að afnema hömlur á verðtryggðri krónu í gær. Þrátt fyrir samfelldar vaxtahækkanir undanfarinna mánuða hefur bankanum nefnilega ekki tekist að auka sparnað. Fjölmyntakerfið er ekki að virka. Sjálfsagt er að vega og meta kosti og galla gömlu krónunnar. En þeir sem trúa hvað heitast á hana þurfa fyrst að sýna okkur hinum fram á að hún sé nothæf fyrir okkur öll í hagkerfinu – ekki bara forréttindahópa. Þeir heittrúuðu þurfa að sýna það og sanna að gamla krónan geti verið hornsteinn þess að hér byggist upp land jafnra tækifæra.

Staðan í dag sýnir svart á hvítu, enn á ný, að það er nær óvinnandi vegur með krónuna í aðalhlutverki.

Birt 15 mars 2023

Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

Umræða
Share4Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    234 deilingar
    Share 94 Tweet 59
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?