Heitar umræður hafa verið undanfarið um verð á eldsneyti á Íslandi. Í samtali við FÍB sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins að eldsneytisverð gæti verið lægra hér ef samkeppnin væri meiri. Verðið sé hátt í alþjóðlegum og evrópskum samanburði þegar opinber gjöld hafa verið dregin frá.
FÍB gerði í vikunni athugasemdir við ummæli forstjóra Skeljungs þar sem félagið undrast hvernig Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, reynir að afvegleiða umræðu um óeðlilega hátt bensínverð hér á landi með þeim ummælum að hér á landi séu ekki reknar olíuhreinsistöðvar. Því sé ekki rétt að miða útsöluverð á eldsneyti við verðsveiflur á heimsmarkaðsverði hráolíu. Þessu hélt Þórður fram í viðtali við RÚV þann 10. apríl.
,,Þessi ummæli eru með ólíkindum. Forstjóri Skeljungs veit – eða ætti að vita í ljósi þess hvar hann starfar – að sala eldsneytis miðast á hverjum tíma við heimsmarkaðsverð á unninni olíu (bensín, dísilolía) sem sveiflast í samræmi við heimsmarkaðsverð á hráolíu. Staðsetning olíuhreinsistöðva skiptir þar engu máli,“ segir í frétt FÍB.
„Athuganir okkar sýna að eldsneytisverð hér á landi þegar opinberu gjöldin hafa verið tekin frá eru há í alþjóðlegum og evrópskum samanburði. Og athuganir okkar sýna líka skýrt að þegar nýir aðilar koma inn á markaðinn og hefja samkeppni, þá skiptir það mjög miklu máli og örvar samkeppnina og skýrasta dæmið um það er þegar Costco hóf hérna sölu á eldsneyti. Það hefur skipt máli fyrir íslenskan almenning,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í viðtalinu við RÚV. Brýnt sé að draga úr aðgangshindrunum og efla virka samkeppni.
Íslendingur var að taka 95 okt. bensín á Kanarí og greiddi þar 192,60 krónur fyrir líterinn af bensíni. Með öllum gjöldum af dælu samkvæmt kvíttun og tekur sérstaklega fram að um dýran flutningskostnað sé um að ræða alla leið til Kanaríeyja.