• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Norrænt samstarf um heilabilun

Norrænt samstarf um heilabilun

Norrænt samstarf um heilabilun og kynning á FINGER forvarna- og rannsóknaverkefninu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. maí 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Þekkt forvarna- og rannsóknaverkefni um heilabilun sem kallast FINGER verður kynnt á opnum fundi þriðjudaginn 16. maí næstkomandi. Verkefnið er finnskt og var þróað og skipulagt af prófessor Miiu Kivipelto. Niðurstöður þess hafa vakið athygli fyrir góðan árangur hjá þátttakendum og orðið að fyrirmynd margra forvarnaverkefna á þessu sviði víða um lönd. Kynningarfundurinn er haldinn í tengslum við árlegan vorfund norræna samstarfshópsins um heilabilun sem fram fer í Reykjavík dagana 15. og 16. maí.

Miia Kivipelto hefur lengi unnið að rannsóknum í faraldsfræðum og forvörnum gegn heilabilun. Verkefnið FINGER er þekktasta framlag hennar á þessu sviði. Verkefnið hófst í Finnlandi fyrir meira en áratug. Það fólst í skipulegri samsetningu á nokkrum forvarnaaðgerðum gegn heilabilun fyrir skilgreindan hóp og var árangurinn borinn saman við svipaðan hóp sem ekki tók þátt í verkefninu.

Verkefnið stóð í tvö ár og vakti árangurinn töluverða athygli og hefur orðið að fyrirmynd margra verkefna víða um lönd. Upphaflegum þátttakendum hefur nú verið fylgt eftir í 10 ár og mun Miia kynna þær niðurstöður á fundinum og setja í stærra samhengi. 

Norrænt samstarf um heilabilun

Heilbrigðisráðuneytið og Alzheimersamtökin standa saman að kynningarfundinum um FINGER og er hann liður í vorfundi norræna samstarfshópsins um heilabilun. Formlegt norrænt samstarf um heilabilun hófst árið 2015. Markmiðið með því er að deila og miðla þekkingu um heilabilun í víðu samhengi, m.a. með því að safna og miðla norrænum rannsóknum á þessu sviði og fjalla um góða starfshætti í þjónustu og við umönnun fólks með heilabilunarsjúkdóma.

Fundurinn um FINGER verður haldinn í fundarsal Íslenskrar erfðagreiningar við Sturlugötu 8 í Reykjavík. Hann er öllum opinn og hefst kl. 15.00.

  • Nánari upplýsingar 
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?