Í morgunsárið var tilkynnt um sérstaklega hættulega líkamsáras í miðbænum. Tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Önnur helstu verkefni lögreglu voru eftirfarandi:
- Ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Þjófnaður á verðmætum af hóteli. Ekki vitað að svo stöddu hvað var tekið.
- Tilkynnt um mann sem ætlaði að stinga gesti á ölhúsi. Þegar lögregla handtók manninn reyndist hann ekki vera með eggvopn á sér. Laus úr haldi lögreglu eftir skýrslutöku vegna meintra hótana.
- Aðili handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Þegar betur var að gáð þá reyndist ökumaðurinn einnig hafa neitt fíkniefna. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Tilkynnt um barn sem sæti í fangi aðila í framsæti bifreiðar. Lögreglan fór á stúfana en fann umrædda bifreið ekki.
Umræða