Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður suðaustan 5-10 m/s með suðurströndinni en annars fremur hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og stöku skúrir en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 9 til 15 stig. Á morgun verður suðlæg eða breytileg átt 3-8 og bjart með köflum en stöku skúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið.
Seint á föstudag er svo von á nokkuð djúpri lægð og henni mun fylgja hvassviðri og stormur og rigning, jafnvel talsverð á köflum. Næstu daga er því kjörið að huga að öllum lausamunum í næsta nágrenni og koma þeim í skjól. Spá gerð: 30.08.2023 05:54. Gildir til: 31.08.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Suðaustlæg átt 3-10 m/s og skýjað með köflum, hvassast með suðvesturströndinni. Sums staðar dálitlar skúrir en þurrt að kalla norðaustantil. Austlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun. Bjart með köflum en stöku skúrir á víð og dreif. Hiti 11 til 16 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt, 15-20 með rigningu undir kvöld, en hægari og þurrt norðaustantil. Hiti 10 til 16 stig. Bætir í vind og úrkomu seint um kvöldið.
Á laugardag:
Sunnan og suðvestan 10-18 með rigningu, talsverðri á köflum. Skúrir seinnipartinn, en styttir upp norðaustantil. Hiti 12 til 18 stig yfir daginn.
Á sunnudag:
Ákveðin sunnanátt með rigningu, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.
Á mánudag:
Suðvestanátt og skúrir, en þurrt að mestu norðan- og austanlands. Hiti 9 til 14 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir fremur hlýja suðvestlæga átt. Skýjað með lítilsháttar vætu vestanlands en bjartviðri fyrir austan.
Spá gerð: 30.08.2023 08:23. Gildir til: 06.09.2023 12:00.