Söngleikurinn Níu líf í Borgarleikhúsinu er enn í gangi og sýningarnar orðnar næstum tvö hundruð. Mjög fátítt er að leiksýningar nái þvílíkum vinsældum en söngleikurinn var frumsýndur í byrjun mars 2020 og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan.
Verkið fjallar um lífshlaup Bubba Morthens sem er ævintýri líkast, Gamli og nýji tíminn kemur við sögu í viðburðarríkri ævi Bubba, þar sem koma fram gömul og ný viðhorf sem og margt fleira áhugavert. Sýningin er stórkostleg og enginn ætti að sleppa því að sjá hana en ennþá er ekki ákveðið hvernær sýningin hættir en að öllum líkindum fer eitthvað að styttast í þann enda, þar sem stór hluti þjóðarinnar hefur séð þessa frábæru sýningu.
Ólafur Egill Egilsson leikstýrir sýningunni og með hlutverk Bubba á ýmsum tímum ævi hans, fara margir leikarar. Halldóra Geirharðsdóttir hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik og söng í sýningunni sem var valin sýning ársins á Grímunni 2022.
,,Bubbi Morthens er samofinn þjóðarsálinni í öllum sínum birtingarmyndum: Stjarnan sem rís úr slorinu; fyrst sem málsvari verkalýðsins, svo alþýðusöngvari þjóðarinnar, þá atómpönkari og gúanórokkari sem breytist í ballöðu-poppara sem syngur með stórsveitum. Skoðanaglaði gasprarinn, skrifblinda ljóðskáldið, fíkilinn sem reis upp, kvennamaðurinn og sá sem elskar aðeins eina konu, Kúbverjinn og Hollywood-víkingurinn, veiðimaðurinn, friðarsinninn og boxarinn. Sögur Bubba Morthens eru sögur okkar allra; sögur Íslands. En hver er hann í raun og veru? Og hver erum við?“ Segir á vefnum Leikhús.is og til þess að fá svör við þessum spurningum er ekkert annað að gera en að drífa sig og sjá þessa stórkostlegu sýningu með eigin augum, sem fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá Fréttatímanum.