Tilkynnt var um alvarlegt umferðarslys í Breiðholti rétt fyrir miðnætti, þar sem tvær bifreiðar skullu saman.
Lögregla þurfti aðstoð slökkviliðs til að ná einum ökumanni út úr bifreið sinni en báðar bifreiðarnar skemmdust talsvert. Lögregla telur sig vita hvernig slysið kom til en málið er í rannsókn.
Miðað við upplýsingar sem bókari hefur voru samtals fjórir aðilar í bifreiðunum.
Umræða