• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Varnarvirki og viðbúnaður vegna ofanflóðahættu

Varnarvirki og viðbúnaður vegna ofanflóðahættu

Skýrsla um mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum í Samráðsgátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda skýrslu um mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum á Íslandi.

Í maí 2022 óskaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið eftir því við Veðurstofu Íslands að fram færi mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum í þéttbýli. Ofanflóðahætta er víða á atvinnusvæðum bæði í og við þéttbýli og í dreifbýli og er skýrslunni ætlað að skapa yfirsýn yfir þann ofanflóðavanda sem við er að eiga á atvinnusvæðum í ofanflóðahættu.

Frá 1996, þegar uppbygging varnarvirkja komst í núverandi horf, hefur Ofanflóðanefnd lagt áherslu á að verja íbúðarhúsnæði í þéttbýli. Þar eru enn stór verkefni óunnin og er áætlað að lokið sé við rúmlega helming þeirra verkefna sem þarf að vinna til þess að verja öll íbúðarhús á C-svæðum í þéttbýli.

Í skýrslunni Mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum á Íslandi er fjallað um tíu þéttbýlisstaði þar sem atvinnuhús eru á C-svæði, en samkvæmt reglugerð skal á slíkum svæðum tryggja öryggi með varanlegum varnarvirkjum eða uppkaupum íbúðarhúsnæðis. Meiri staðaráhætta er leyfð í atvinnuhúsum en í íbúðarhúsum.

Í skýrslunni eru lagðar eru til varnir þar sem þær eru mögulegar og kostnaðarmat er minna eða á pari við brunabótamat þess sem er varið. Ekki eru lagðar til varnir fyrir þau hús sem ekki svarar kostnaði að verja eða það er tæknilega ómögulegt

Efni skýrslunnar hefur verið kynnt sérstaklega fyrir þeim sveitarfélögum sem búa við ofanflóðahættu og fjallað er um í skýrslunni, en í kjölfar þess samráðs auk kynningar í samráðsgátt stjórnvalda mun ráðuneytið á grundvelli niðurstöðu skýrslunnar og samráðs kynna til samráðs tillögu um lagafrumvarp þar sem m.a. verður skoðað hvort skýra eigi gildissvið laga nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum þannig að skýrt sé að lögin taki einnig til atvinnusvæða.

Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um efni skýrslunnar og er umsagnafrestur í samráðsgátt stjórnvalda til 15. nóvember nk.

Skýrsla um mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum á Íslandi

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    465 deilingar
    Share 186 Tweet 116
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?