• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 22. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Síldarævintýri og fjárfestahátíð á Siglufirði

Ráðherra ásamt starfsfólki Síldarminjasafnsins.

Síldarævintýri og fjárfestahátíð á Siglufirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2024
in Afþreying, Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, heimsótti Siglufjörð í vikunni og ávarpaði þar fjárfestahátíð Norðanáttar og heimsótti Síldarminjasafnið.

Tilgangur fjárfestahátíðarinnar var að auka fjárfestingatækifæri á landsbyggðinni og tengja frumkvöðla við fjárfesta og aðra lykilaðila í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Ráðherra kom inn á nýsköpunarkraft og aðlögunarhæfni Siglfirðinga í ávarpi sínu og hvernig þeim hefði tekist með miklum glæsibrag að snúa vörn í sókn eftir að síldin hvarf.

„Það er vel við hæfi að halda frumkvöðlaviðburð sem þennan hér á Siglufirði, þar sem er sannkallaður kraftur í nýsköpun. Síðustu ár hefur minningunni um síldina verið gerð skil hér á Síldarminjasafninu sem er orðið eitt stærsta iðnaðarsafn Evrópu og hér er eitt glæsilegasta hótel landsins sem reist var í anda síldaráranna. Í sveitarfélaginu eru einnig starfrækt tvö líftæknifyrirtæki sem byggja framleiðslu sína á fullnýtingu sjávarafurða ásamt fjölmörgum öðrum framsýnum fyrirtækjum,“ sagði ráðherra.

Ráðherra heimsótti einnig Síldarminjasafnið og skrifaði undir samning við safnið um rekstrarframlag til ársins 2026. Safnið er vinsæll viðkomustaður ferðamanna en um 35.000 gestir heimsóttu það í fyrra. Ráðherra kíkti einnig við í Salthúsinu, sem er ný viðbót við húsakost safnsins. Þar eru vel búin varðveislurými fyrir safnkost, nýtt sýningarrými og opið rými fyrir safnverslun og kaffihús.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rætt um mikilvægi sjálfsfróunar í fermingarfræðslu – ,,Alltaf í sleik við Jesús“

    Rætt um mikilvægi sjálfsfróunar í fermingarfræðslu – ,,Alltaf í sleik við Jesús“

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Miðbærinn í Reykjavík undir sjávarborði samkvæmt spálíkunum

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hringlandaháttur í veiðistjórnun

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Ekki kaupa húsgögn eða gjafavörur! – Sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!“

    513 deilingar
    Share 205 Tweet 128
  • Undirskriftalisti um kröfu á uppsögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur

    144 deilingar
    Share 58 Tweet 36
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?