• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mjög gott rekstrarár að baki hjá Hafnarfjarðarbæ

default

Mjög gott rekstrarár að baki hjá Hafnarfjarðarbæ

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 lagður fram

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. apríl 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var lagður fram í bæjarráði í dag 22. apríl 2024. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 808 milljónum króna á árinu 2023, samanborið við 890 milljónir árið áður. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði nam 3.649 milljónum króna. Afgangur af rekstri A hluta nam 251 milljón króna sem er nánast sami afgangur og árið á undan. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 2.635 milljónum króna og var 904 milljónum yfir áætlun. Veltufé frá rekstri svaraði til 5,6% af heildartekjum á síðasta ári. Skuldaviðmið samstæðu Hafnarfjarðarbæjar heldur áfram að lækka og nam 82% í árslok 2023. 

„Rekstur Hafnarfjarðarbæjar gekk mjög vel á síðasta ári þrátt fyrir krefjandi árferði í rekstri sveitarfélaga. Það er ánægjulegt að sjá að skuldaviðmið bæjarins heldur áfram að lækka og er nú svo komið að fjárhagsstaða bæjarins hefur ekki verið betri í áratugi. Veltufé frá rekstri var verulega yfir áætlunum sem styrkir getu sveitarfélagsins til þess að standa undir framkvæmdum og fjárskuldbindingum. Samhliða blómlegum rekstri voru innviðafjárfestingar auknar verulega í fyrra sem munu skila sér í öflugri þjónustu og betri lífsgæðum fyrir bæjarbúa. Þá nýtur bærinn nú góðs af mikilli uppbyggingu íbúða- og atvinnuhúsnæðis á undanförnum árum í auknum fasteignagjöldum. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að halda álögum á íbúa niðri og heldur hlutfall útsvars og fasteignaskatta af heildartekjum áfram að lækka,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.

Skuldaviðmið hélt áfram að lækka á árinu 2023

Rekstrartekjur af A og B hluta námu 47,3 milljörðum króna á árinu 2023 og jukust um 5,4 milljarða á milli ára. Þar af jukust tekjur vegna útsvars og fasteignaskatta um 3,1 milljarð króna. Í hlutfalli við heildartekjur námu útsvartekjur 49,8% og fasteignaskattar 8,3% sem er lækkun á milli ára.  Rekstrargjöld voru 42,0 milljarðar króna og jukust um 5,4 milljarða. Þar af námu laun og launatengd gjöld 22,2 milljörðum króna og jukust um 2,4 milljarða á milli ára. Hlutfall launa og launatengdra gjalda sem hlutfall af heildartekjum var um 47%. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu 2.840 milljónum króna og lækkuðu um 177 milljónir milli ára. Fjármagnskostnaður var þó  króna yfir áætlun sveitarfélagsins vegna neikvæðrar verðlags- og vaxtaþróunar miðað við upphaflegar forsendur. Rekstrarniðurstaða A og B-hluta var jákvæð um 808 m.kr. sem er um 382 m.kr. undir áætlun. Ef ekki hefðu komið til ófyrirséðar auknar lífeyrisskuldbindingar á árinu hefði rekstrarniðurstaða verið nokkuð yfir áætlun. Skuldaviðmið Hafnarfjarðarbæjar hélt áfram að lækka á árinu 2023 úr 85% niður í 82% og er það því verulega undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Skuldahlutfall fór úr 135% í upphafi árs niður í 129%.

74% aukning í fjárfestingum milli ára

Fjárfestingar á árinu 2023 námu 7,1 milljarði króna sem er 74% aukning milli ára. Heildareignir í lok árs voru alls 93,9 milljarðar króna og jukust um 9,3 milljarða á milli ára. Alls námu heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins 61,1 milljarði króna og jukust um 4,6 milljarða króna. Lífeyrisskuldbindingar nema tæplega þriðjungi heildarskulda og skuldbindinga sveitarfélagsins. Eigið fé nam 32,8 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 4,6 milljarða króna á árinu. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr 33,3% í  34,9% yfir árið 2023.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 30.616 hinn 1. janúar 2024 miðað við endurbætta aðferð Hagstofu Íslands við mat á íbúafjölda á Íslandi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    123 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    833 deilingar
    Share 333 Tweet 208
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Bankarnir hóta viðskiptavinum

    528 deilingar
    Share 211 Tweet 132
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?