Ég var í mjög óþægilegu flugi að næturlagi með flugvél Play frá Barcelona, og er hreint út sagt mjög óánægður með þá ferð og sinnuleysi starfsfólk bæði í ferðinni og eftir hana.
Í fyrsta lagi, var um klukkutíma töf á að vélin færi í loftið og hún lenti um hálftíma of seint í Keflavík en við áttum að lenda klukkan 01.20 og það stóðst ekki heldur. Af einhverjum fáránlegum ástæðum vorum við hjónin sett í sæti með einhverju fólki í sitthvorri sætaröðinni, þ.e. konan var í sæti fyrir framan mig með ókunnugu fólki og ég í sömu stöðu fyrir aftan hana.
Líklega gert til þess að neyða farþega til að borga fyrir sætaval
Ég skoðaði ekki vel hvert átti að setja okkur, þar sem mér var sama hvað við myndum sitja enda aldrei á ævinni lent í því fyrr að vera ekki sett hlið við hlið og því yfirsást mér að athuga sætin enda átti ég enga von á þessu rugli.
Ekki tók betra við þegar við fórum í loftið heim, þá vorum við sitthvoru megin í flugvélinni. Ég ræddi við flugfreyju sem bauð okkur tvö sæti sem voru hlið við hlið.
Líklega er þetta gert til þess að neyða farþega til að borga fyrir sætaval enda engin önnur vitræn skýring á svona vinnubrögðum sem koma niður á viðskiptavinum.
Gátum ekkert hvílt okkur alla ferðina, hvað þá sofið – Ekki hægt að halla sætum við neyðarútgang
Við fórum aftar í vélina og settumst þar í þetta næturflug sem var framundan. Þá áttuðum við okkur á eftir að vélin var farin í loftið að þetta voru sæti fyrir framan neyðarútganginn og ekkert hægt að halla þeim aftur, það er einungis hægt að halla aftur öllum öðrum sætum í vélinni. Auk þess sem pláss fyrir fætur er sama og ekkert. Þetta þýddi það að við gátum ekkert hvílt okkur alla ferðina, hvað þá sofið. Þegar fólkið fyrir framan hallaði sætunum aftur, fengum við þau í fæturnar með tilheyrandi sársauka, ég er 1,90 og hún 1,80 og átti aldrei að láta okkur sitja í þessum sætum.
Við vorum sem sagt í kremju alla leiðina heim. Þegar ferðin var rúmlega hálfnuð, stóðum við upp til að liðka okkur aðeins og kíkja í leiðinni á WC. Þá sáum við slatta af fólki sem svaf í þriggja sæta röðum í flugvélinni. Hvað er í gangi hjá Play og starfsfólki vélarinnar að hafa ekki boðið okkur upp á að sitja t.d. í þeim auðu sætum, þar sem hægt var að halla sætum og ná hvíld og smá svefni og eðlilegu fótaplássi?
Seinkanir og fleira skrautlegt
Þá þurftum við að bíða í 40 mínútur eftir töskunni sem er bara alls ekki í lagi, bara alls ekki! Sama sagan var í síðustu ferð okkar til Berlínar, þar vorum við látin standa í flugvélarana í 40 mínútur og seinkun á báðum ferðum.
Í nótt vorum við komin heim um klukkan fjögur í morgun í stað klukkan tvö eins og við reiknuðum með og dagurinn algerlega ónýtur hjá okkur báðum.
Skilningsleysi og útúrsnúningar starfsfólks Play
Mér þótti rétt að tala við starfsfólk Play um málið en þar mætti mér bara skilningsleysi og útúrsnúningar. Ég sendi skriflegar ábendingar um hvernig hvert klúðrið á fætur öðru hafði neikvæð áhrif á upplifun okkar, í boði Play, sem neitaði að axla ábyrgð og ég upplifði gaslýsingu af hálfu starfsfólks. Það er að segja þegar ég fékk að tala við starfsmann, en fyrst lenti ég í samtali við vélmenni á netinu sem er forritað með gervigreind, eða jafnvel engri greind.
Ömurleg þjónusta sem fer mjög versnandi
Þetta er ömurleg þjónusta sem fer mjög versnandi, við ferðumst mikið og höfum haldið tryggð við Play og erum ekki vön að kvarta en það er bara ekki annað hægt þegar hvert klúðrið á fætur öðru er í boði Play.