• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Auglýst eftir þátttöku í tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

Velferðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá vaktavinnustöðum hjá ríkinu um þátttöku í tilraunaverkefni ríkisins og BSRB um styttingu vinnutíma. Vinnustaðir um allt land eru hvattir til að sækja um. Markmið verkefnisins er að kanna hvort stytting vinnuviku leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi vinnustaðar.
Valinn verður einn vaktavinnustaður þar sem vinnustundum verður að jafnaði fækkað úr 40 stundum á viku í 36 án þess að til launaskerðingar komi. Tilraun um styttingu vinnutíma mun standa yfir 9 mánuði, frá 1. september 2018 til 1. júní 2019, á þeim vaktavinnustað er valinn verður til þátttöku.
Umsóknarfrestur er til 22. júní næstkomandi.
Við mat á umsóknum verða m.a. eftirfarandi viðmið höfð til hliðsjónar:
Að stöðugildi á vinnustaðnum séu 20 eða fleiri.
Að a.m.k. 30% starfsmanna á vinnustaðnum séu í aðildarfélögum BSRB.
Að meirihluti starfsmanna sé í 70 – 100% starfshlutfalli.
Í umsóknum skulu koma fram hugmyndir um hvernig útfæra megi styttingu vinnutíma á viðkomandi vaktavinnustað. Einnig þarf að koma fram hvernig megi meta áhrif styttingu vinnutíma á vellíðan starfsfólks, starfsanda og þá þjónustu sem vinnustaðurinn veitir með tilliti til gæða og hagkvæmni.
Þátttaka stærri vinnustaða getur afmarkast við deild eða svið innan vinnustaðarins að teknu tilliti til ofangreindra viðmiða.
Starfshópur um tilraunaverkefnið er skipaður fulltrúum velferðarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og BSRB. Hlutverk hópsins er m.a. að velja vinnustaði til þátttöku í tilraunaverkefninu og meta árangur þess.
Starfsmaður verkefnisins er Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir, sérfræðingur hjá velferðarráðuneytinu. Nánari upplýsingar fást hjá henni í síma 545-8100. Umsóknum skal skilað á netfangið postur@vel.is merkt tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma – vaktavinnustaður.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    210 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?