• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Voldug 976 mb lægð – Leifar af heimskautavetrinum

Voldug 976 mb lægð – Leifar af heimskautavetrinum

Mjög óvenjulegt veður á þessum árstíma - Appelsínugul og gul viðvörun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júní 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú þegar þetta er skrifað í morgunsárið er voldug 976 mb lægð stödd norðaustur af landinu, miðja hennar er um 350 km norðaustur af Langanesi. Lægðin þokast til suðurs í dag og færist því nær okkur, en á móti kemur að lægðin er hætt að dýpka.

Þessi mikla lægð beinir til okkar köldu lofti úr norðri, það má segja að um sé að ræða leifarnar af heimskautavetrinum. Einnig er talsverð úrkoma sem fylgir lægðinni. Á vefmyndavélum má sjá að það hefur snjóað nokkuð drjúgt í nótt á Norður- og Austurlandi, jafnvel niður að sjávarmáli á sumum stöðum. Auk þessa er hvass norðan vindstrengur yfir stærstum hluta landsins, það er helst að vestasti hluti landsins hafi sloppið skást enn sem komið er, en þar á væntanlega eftir að hvessa þegar líður á morguninn.

Það þarf vart að taka það fram að hér er um að ræða mjög óvenjulegt veður á þessum árstíma, bæði hvað varðar vindstyrk og einnig lágt hitastig samfara mikilli úrkomu á norðanverðu landinu. Einnig gefa spár til kynna að illviðrið verði sérlega langvinnt, í grófum dráttum gera spár ráð fyrir að óveðrið standi linnulítið út fimmtudag, en aðfaranótt föstudags er útlit fyrir að veður skáni svo um munar.
Spá gerð: 04.06.2024 05:44. Gildir til: 05.06.2024 00:00.

Appelsínugul viðvörun vegna veðurs: Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra  

Veðurhorfur á landinu
Norðan og norðvestan 13-23 í dag og á morgun, hvassast austantil. Slydda eða rigning nærri sjávarmáli fyrir norðan og austan, annars snjókoma. Hiti 0 til 4 stig. Úrkomulítið sunnantil og við vesturströndina með hita að 9 stigum yfir daginn.
Spá gerð: 04.06.2024 04:44. Gildir til: 05.06.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðvestan og norðan 13-20 m/s. Þurrt að kalla sunnantil, annars slydda, rigning eða snjókoma. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðausturlandi.

Á föstudag:
Minnkandi norðanátt, 5-13 um kvöldið. Skúrir eða él, en bjartviðri sunnanlands. Hiti 3 til 12 stig, mildast syðst

Á laugardag:
Norðvestan 5-10 og dálítil slydda af og til fyrir norðan en bjart með köflum um landið suðvestanvert. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:
Fremur hæg breytileg átt og rofar víða til. Hiti 5 til 13 stig, svalast norðaustantil.

Á mánudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og fer að rigna á Suður- og Vesturlandi, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnar í veðri.
Spá gerð: 04.06.2024 08:30. Gildir til: 11.06.2024 12:00.

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?