• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Neitaði að taka sprautuna og var rekin – fær 95 milljónir í skaðabætur

Neitaði að taka sprautuna og var rekin – fær 95 milljónir í skaðabætur

„Ég trúi því eftir persónulegar athuganir, að öll Covid-19 bóluefni séu unnin úr frumum eyddra fóstra"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júlí 2024
in Erlent, Fréttir
A A
0

Kona frá Tennessee í Bandaríkjunum sem var rekin úr starfi fyrir að neita að taka Covid-19 sprautuna hefur fengið 687 þúsund dollara í skaðabætur… um 95 milljónir íslenskra króna.

Alríkisdómnefnd komst að þeirri niðurstöðu, að neitun konunnar, Tanja Benton, var vegna „einlægrar trúarskoðunar hennar.“ Af samtals 687.000 dollurum sem kviðdómurinn dæmdi voru 177.000 baklaun, 10.000 í skaðabætur og 500.000 í refsibætur.

Benton starfaði árin 2005 – 2022 hjá „BlueCross BlueShield í Tennessee, BCBST.“ Hún hélt því fram í málsókn sinni, að störf hennar fælu ekki í sér regluleg samskipti við fólk, þar sem hún vann að líftölfræði öllum stundum fyrir framan tölvuna. Sagðist hún einungis hafa samskipti við 10 – 12 viðskiptavini á ári og oft í gegnum tölvuna.

Engar athugasemdir gerðar vegna starfsins

Gústaf Adolf Skúlason skrifar

Benton vann að heiman í eitt og hálft ár meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Aldrei var kvartað yfir störfum hennar fyrr en BCBST tilkynnti starfsmönnum að kröfur um bólusetningar yrðu innleiddar.

Hún neitaði að taka bóluefnið og sagði:

„Ég trúi því eftir persónulegar athuganir, að öll Covid-19 bóluefni séu unnin úr frumum eyddra fóstra. ÉG gat því ekki látið bólusetja mig með góðri samvisku vegna þess að bóluefnið myndi ekki aðeins saurga líkama minn heldur einnig móðga og vanvirða Guð.“

Þegar BCBST tilkynnti um bóluefniskröfuna lagði Benton fram beiðni um undanþágu vegna trúarbragða, en fyrirtækið neitaði og sagði að hún yrði að hætta störfum ef hún fylgdi ekki kröfum fyrirtækisins.

Var rekin

Benton andmælti og útskýrði að hún hefði ekki komist í snertingu við fólk í starfi sínu en var þá sagt að engar undantekningar væru gerðar. Ráðlagði fyrirtækið henni að sækja um störf hjá öðrum. Að lokum rak fyrirtækið Benton sem leiddi til þess, að hún höfðaði alríkismálið. Dalya Qualls samskiptastjóri BCBST segir:

„Við teljum að krafan um bólusetningu hafi verið ein besta ákvörðun sem við höfum tekið fyrir starfsmenn okkar. Við teljum að aðlögun okkar að kröfunni hafi verið í samræmi við lög.“

Umræða
Share46Tweet29
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?