• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aðgengilegir matjurtakassar í þróun í Grasagarði Reykjavíkur

Aðgengilegir matjurtakassar í þróun í Grasagarði Reykjavíkur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. júlí 2024
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

Aðgengilegir matjurtakassar eru núna í þróun hjá Reykjavíkurborg og er fyrsta útgáfan til sýnis í Grasagarði Reykjavíkur um þessar mundir. Markmiðið með matjurtakassanum er að auðvelda aðgengi fólks að borgarrýmum, í samræmi við aðgengisstefnu Reykjavíkur.

Matjurtakassinn er upphækkaður og ætti að henta fólki sem notar hjólastóla, göngugrindur eða fólki sem á erfitt með að vinna á hnjánum.

Um er að ræða samstarfsverkefni á milli Hverfið mitt og aðgengisfulltrúa Reykjavíkur. Í Reykjavík er í gildi aðgengisstefna sem samþykkt var í borgarstjórn árið 2022. Aðgengisstefnan byggir á hugmyndafræði um algilda hönnun.

 

Matjurtakassi fyrir þá sem nota hjólastól.
Matjurtakassi fyrir fólk sem notar hjólastól .

 

Kassinn var hannaður af Ragnhildi Skarphéðinsdóttur og Svövu Ragnarsdóttur hjá Hornsteinum Arkitektum og smíðaður og útfærður af Hjálmari Hjálmarssyni í Kúnstverk. Kassin er útfærður þannig að borð er fyrir fólk sem notar hjólastól eða göngugrindur sem má svo breyta í sæti fyrir fólk sem á erfitt með að vinna á hnjánum.

Matjurtakassi þar sem hægt er að sitja þegar verið er að hirða um matjurtakassann
Matjurtakassi fyrir fólk sem vill að sitja og huga að matjurtunum.

 

Fyrstu aðgengilegu matjurtakassarnir verða staðsettir í matjurtagarði í Hlíðunum sem komið verður upp á næsta ári. Sú hugmynd hlaut kosningu í verkefninu Hverfið mitt í fyrra.

Í Grasagarði Reykjavíkur er hægt að skoða frumgerðina af matjurtakassanum, en búast má við að kassinn geti tekið einhverjum breytingum eftir ábendingar frá notendum í sumar. Þeir sem vilja koma með hugmyndir um hvað mætti betrumbæta er bent á að senda á adgengi@reykjavik.is

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    462 deilingar
    Share 185 Tweet 116
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • ,,No borders hafa flúið“ – Þögn vegna ótta : Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?