Helstu fréttir úr dagbók lögreglu í dag eru eftirfarandi:
Aðili handtekinn grunaður um vörslu fíkniefna. Hann vistaður í fangaklefa þangað til skýrsla verður tekinn af honum
Átök urðu milli aðila sem var að reyna að kaupa sér fíkniefni og þess sem átti að vera að selja fíkniefnin. Annar sló bifreið með golfkylfu svo einhverjar skemmdir urðu en enginn slasaðist. Lögreglan hafði uppá þeim sem hafði sig meira fram og skemmdi bifreiðina. Hann handtekinn og tekin af honum skýrsla.
Bifreið stöðvuð í akstri og ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einnig var ökumaðurinn og farþegarnir tveir kærðir fyrir vörslu fíkniefna.
Slökkvilið kallað á vettvang eftir að aðili kveikti í ruslagám. Nokkur eldur var komin í gáminn þegar slökkviliðið kom á vettvang. Gerandi þekktur hjá lögreglu og er verið að leita af honum þegar þetta er skrifað.