Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hjá Arion banka hækka um 0,60 prósentustig og verða 4,64%. Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,74%
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir einnig að breytingarnar taki gildi í dag.
Þá segir, að verðtryggðir breytilegir kjörvextir hækki um 0,75 prósentustig og verði 6,2%
„Breytingar á vöxtum verðtryggra útlána eru meðal annars tilkomnar vegna hækkunar á ávöxtunarkröfu verðtryggðrar fjármögnunar,“ segir í tilkynningunni.
Umræða