• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mótmæla staðsetningu Coda Terminal í Hafnarfirði

Mótmæla staðsetningu Coda Terminal í Hafnarfirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. september 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fulltrúar íbúa sem mótmæla staðsetningu Coda Terminal í Hafnarfirði sendu bréf á alla þingmenn Suðvesturkjördæmis í dag til að hvetja þá til að kynna sér Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði, nálægð þess við íbúabyggð og áhyggjur íbúa vegna mikillar óvissu sem fylgir þessu verkefni.

Lítil sem engin umræða hefur farið fram á Alþingi síðan að reglugerð um geymslu koldíoxíðs í jörðu var undirrituð á Alþingi þann 5. Desember 2022.  Íbúar í Hafnarfirði vilja hvetja alþingismenn kjördæmisins til að opinnar umræðu um reglugerðina og skort á ramma í kringum hana sem ver hagsmuni íbúa og náttúru á þeim svæðum sem verkefni sem þessi verða sett upp í framtíðinni.

Íbúar vilja líka benda á mikilvægi þess að leggja heildstætt mat á þetta verkefni í samhengi við kostnað, rask á náttúru og umhverfi, ósætti við íbúa, óvissu um áhrif á grunnvatn, jarðhræringar, lífríki og fleira, nýtingu náttúruauðlinda og innviða ásamt mati á loftslagsávinningi sem af verkefninu hlýst þegar búið er að taka tillit til losunar sem verkefnið sjálft býr til þ.e. virðiskeðjuna frá upphafi til enda.

Einnig vilja íbúar benda á að svona verkefni  þarf að vinna í náinni samvinnu og sátt við íbúa á staðnum sem eiga að fá að hafa eitthvað um málið að segja.  Íbúar í Hafnarfirði krefjast þess að Coda Terminal málið sé sett í íbúakosningu hið fyrsta.

kveðja, Vinnuhópur vegna mótmæla gegn Coda Terminal í Hafnarfirði

Hafnarfirði 25.9.2024

Fyrir hönd íbúa í Hafnarfirði þá langar okkur að vekja athygli þína á risa stóru verkefni sem er
fyrirhugað í nokkuð hundruð metra fjarlægð frá íbúabyggð við Vellina í Hafnarfirði.
Verkefnið nefnist Coda Terminal og gengur út á að flytja inn 3 milljón tonna af koldíoxíð á ári frá
verksmiðjum í Evrópu og binda í berg undir heimilum okkar í Hafnarfirði.

Mikil óvissa er um áhrif þessa stóra verkefnis á umhverfi, náttúru, grunnvatn, jarðhræringar, lífríki
og íbúa Hafnarfjarðar svo eitthvað sé nefnt og kemur skýrt fram í umsögnum Umhverfisstofnunar
og Náttúrufræðistofnunar um Coda Termnal verkefnið. Íbúar hafa ekki fengið að koma að
borðinu að neinu leiti við ákvörðun um þessa staðsetningu á Coda Terminal verkefninu steinsnar
frá heimilum okkar í Hafnarfirði.

Nánast engin umræða hefur farið fram á Alþingi um þetta verkefni og mögulega önnur
sambærileg í framtíðinni. Reglugerð um geymslu koldíoxíð í jörðu var undirrituð á Alþingi 5.
desember 2022, daginn eftir þá var undirrituð viljayfirlýsing milli Rio Tinto, Carbfix og
Hafnarfjarðarbæjar um uppbyggingu á Coda Terminal verkefninu í mikilli nálægð við íbúabyggð í
Hafnarfirði.

Í reglugerðinni er ekkert talað um hvar staðsetja megi slík verkefni, hversu nálægt íbúabyggð má
verkefnið vera staðsett, hvað má fórna mikið af íslenskri náttúru fyrir verkefnið, hvað erum við
tilbúin til að fórna mikið af náttúruauðlindum og innviðum fyrir verkefnið (vatn, rafmagn,hiti).

Hver ber ábyrgð ef leki eða tjón verður af völdum verkefnisins, hver ber ábyrgð á eigum íbúa sem
mögulega verða fyrir tjóni af verkefninu ef manngerðir jarðskjálftar eða hækkun grunnvatns
veldur skaða á hýbýlum eða íbúðaverð fellur í kjölfar uppbyggingar verkefnisins, og síðast en ekki
síst, hvernig skal samráði við íbúa háttað þegar svona risastór tilraunaverkefni eru sett af stað.

Íbúar í Hafnarfirði eru almennt mjög mótfallnir þessu verkefni í þessari nálægð við íbúabyggð og
þeirri óvissu sem íbúar munu þurfa að búa við næstu áratugina vegna þessa verkefnis og
hugsanlegra áhrifa þeirra á umhverfið. Okkur finnst miklu fórnað fyrir mjög lítinn ávinning í
loftlagsmálum heimsins.

Við óskum eftir því að þú sem þingmaður og fulltrúi okkar í Suðvestur kjördæmi kynnir þér þetta
risastóra mál sem engin reynsla er af á Íslandi og hefur aldrei verið gert áður í heiminum af
þessari stærðagráðu eða í þessari nálægð við íbúabyggð.

Það er von okkar að þú verjir hagsmuni okkar íbúa í kjördæminu þínu og stuðlir að því að íbúar fái
að kjósa um þetta verkefni. Við erum tilbúin til viðræðu við þig og þína flokksmenn hvenær sem
er svo þú getir kynnt þér afstöðu og líðan bæjarbúa vegna þessa máls.

Með kveðju úr Hafnarfirði,
Fh. Íbúa sem mótmæla staðsetningu Coda Terminal við íbúabyggð

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?