• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Meðferðarheimilið Lækjarbakki fær nýtt húsnæði

Meðferðarheimilið Lækjarbakki fær nýtt húsnæði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. nóvember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Meðferðarheimilið Lækjarbakki hefur fengið nýtt húsnæði í Miðgarði í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Það mun hefja þar starfsemi á nýjan leik að loknum nauðsynlegum framkvæmdum.

Heimilið er hið eina sinnar tegundar á landinu. Það býður upp á langtímameðferð fyrir drengi sem lokið hafa greiningu og meðferð á öðrum heimilum. Meðferðin er ætluð unglingum, á aldrinum 14 til 18 ára, sem glíma við alvarlegan vanda á borð við vímuefnaneyslu, ofbeldi, afbrot, skóla- og námserfiðleika eða sálfélagslegan vanda, þegar önnur úrræði duga ekki til.

Á heimilinu eru allt að sex drengir hverju sinni í um sex mánuði en tímalengd meðferðar er mismunandi eftir einstaklingum. Sérstök áhersla er lögð á að virkja drengina í tómstundum, skóla og vinnu með það að augnamiði að hjálpa þeim við að takast á við áskoranir að meðferð lokinni. Við lok meðferðar stendur þeim til boða sex mánaða eftirfylgd.

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofa hafa unnið stíft að því að finna nýtt húsnæði frá því að loka þurfti húsnæðinu í nágrenni Hellu í vor þar sem starfsemin var áður en það húsnæði var dæmt ónothæft. Leitin hefur átt sér stað í góðu samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið og fleiri aðila, einkum Land og skóg sem er með starfsemi í Miðgarði en mun nú flytja þá starfsemi í önnur hús á staðnum. Húsnæðið er talið henta vel fyrir meðferðarheimilið Lækjarbakka.

Barna- og fjölskyldustofa rekur meðferðarheimilið Lækjarbakka og mun hefja starfsemina að nýju að loknum nauðsynlegum framkvæmdum í Miðgarði.

Til baka
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?