Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður suðaustanátt, yfirleitt á bilinu 8-13 m/s og dálítil él eða skúrir, en suðaustan 13-20 m/s með rigningu eða slyddu á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum síðdegis. Þurrt að mestu norðaustanlands. Hlýnandi veður, hiti víða 1 til 6 stig um kvöldið.
Áframhaldandi sunnanátt á morgun með rigningu en þurrt að kalla á Austurlandi.
Aðfaranótt sunnudags gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu og hiti fer upp í 5 til 10 stig. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.
Spá gerð: 10.01.2025 06:39. Gildir til: 11.01.2025 00:00.
Gul viðvörun vegna veðurs: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Suðausturland og Miðhálendi
Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél, en 10-18 m/s norðvestantil síðdegis og samfelldari rigning eða slydda um tíma. Hægari vindur og skýjað með köflum eða bjartviðri norðaustan- og austanlands.
Hlýnandi veður. Allvíða 0 til 6 stiga hiti seinnipartinn í dag um vestanvert landið, en áfram vægt frost austantil fram eftir degi á morgun.
Spá gerð: 10.01.2025 09:53. Gildir til: 12.01.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðaustan 13-20 m/s, hvassast suðvestantil fyrst um morguninn. Rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í hægari suðvestlæga átt um hádegi og dregur úr vætu, en áfram rigning suðaustanlands fram eftir degi. Hiti 1 til 8 stig.
Á mánudag:
Sunnan og suðvestan 5-10 m/s og rigning eða slydda, en þurrt að kalla austanlands framan af degi. Hiti 1 til 6 stig, en frost 0 til 7 stig á norðaustanverðu landinu.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt og rigning, en lengst af úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á miðvikudag:
Ákveðin suðvestlæg átt og rigning, en þurrt að kalla á Austurlandi. Gengur í vaxandi norðaustanátt með snjókomu norðvestantil þegar líður á daginn. Kólnandi veður.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir norðlæga átt með éljum, en úrkomulítið suðaustantil. Frost um mest allt land.
Spá gerð: 10.01.2025 07:55. Gildir til: 17.01.2025 12:00.