• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjögur stór sveitarfélög stytta vinnuvikuna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

Fjögur stór sveitarfélög stytta vinnuvikuna

Stytting vinnuvikunnar hefur gefið góða raun hjá Reykjavíkurborg og ætla framsýnir stjórnendur fleir…
Stytting vinnuvikunnar hefur gefið góða raun hjá Reykjavíkurborg og ætla framsýnir stjórnendur fleiri sveitarfélaga að fylgja í kjölfarið.

Fjögur af stærstu sveitarfélögum landsins, Reykjavík, Akranes, Akureyri og Reykjanesbær, vinna nú að því að stytta vinnuviku starfsmanna, ýmist með tilraunaverkefnum eða með öðrum hætti.
Tilraunaverkefni hjá Reykjavíkurborg hefur þegar gefið góða raun og munu Akranes, Akureyri og Reykjanesbær fylgja góðu fordæmi höfuðborgarinnar. Sveitarfélögin eru öll í hópi tíu stærstu sveitarfélaga landsins og í þeim býr rúmur helmingur landsmanna.
Stytting vinnuvikunnar hefur verið eitt af stærstu baráttumálum BSRB lengi og því afar ánægjulegt að nú virðist kominn skriður á málið. Auk sveitarfélaganna sem vinna að styttingu vinnuvikunnar er ríkið með tilraunaverkefni í gangi í samvinnu við BSRB sem hefur gefið afar góða raun.

Vinnan hafin á Akranesi

Stofnaður hefur verið starfshópur hjá Akraneskaupstað sem hefur það verkefni að útfæra tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar og án þess að þjónusta við bæjarbúa skerðist. Þá á hópurinn að útfæra mælikvarða til að meta áhrif verkefnisins á heilsu, vellíðan, starfsanda og þjónustu við bæjarbúa.
Stefnt er að því að tilraunaverkefnið á Akranesi hefjist ekki síðar en í upphafi næsta árs og á starfshópurinn að skila áfangaskýrslu til bæjarráðs um miðjan október.

Stytting vinnuviku í málefnasamningum

Kveðið er á um styttingu vinnuvikunnar í málefnasamningum meirihlutans í að minnsta kosti tveimur sveitarfélögum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga.
Í málefnasamningi L-listans, Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar á Akureyri segir einfaldlega að farið verði í tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar í sveitarfélaginu, en það er ekki útfært nánar í samningnum.
Í málefnasamningi Samfylkingar, Beinnar leiðar og Framsóknarflokks í Reykjanesbæ er ákveðið að stofnað verði sérstakt framtíðarráð sem fjalla mun um ýmis mikilvæg mál sem meirihlutinn vill koma til framkvæmda. Eitt af því sem ráðið á að fjalla um er útfærsla á sveigjanlegum vinnutíma og styttingu vinnuvikunnar.

Góður árangur hjá borginni

Reykjavíkurborg hefur leitt vagninn þegar kemur að styttingu vinnuvikunnar. Tilraunaverkefni BSRB og borgarinnar var fyrsta tilraunaverkefnið þar sem vinnuvika starfsmanna var stytt án þess að laun skertust á móti. Undirbúningur fyrir verkefnið fór af stað árið 2015 og hefur gefið afar góða raun.
Árangurinn af tilraunaverkefni BSRB og Reykjavíkurborgar hefur verið svo góður að borgarráð ákvað að framlengja tilraunaverkefnið og útvíkka það frá febrúar síðastliðnum þegar öllum vinnustöðum borgarinnar var gefinn kostur á að taka þátt. Í dag tekur um fjórðungur starfsmanna borgarinnar, um 2.200 manns, þátt í tilraunaverkefninu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    183 deilingar
    Share 73 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?