• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Geðheilsumiðstöð barna efld með áherslu á styttri bið eftir þjónustu

Frá heimsókn Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til Geðheilsumiðstöðvar barna 7. febrúar 2025

Geðheilsumiðstöð barna efld með áherslu á styttri bið eftir þjónustu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. febrúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag um aukið fjármagn til Geðheilsumiðstöðvar barna (GMB). Þetta gerir GMB kleift að fjölga stöðugildum í greiningarteymum miðstöðvarinnar um tvö í því skyni að stytta bið barna eftir þjónustu. Miðstöðin veitir annars stigs geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra um allt land. „Þessi ákvörðun endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar á að stytta bið barna eftir mikilvægri þjónustu og setja geðheilbrigðismál í forgang. Ég er sannfærð um að þetta er góð ákvörðun, því þörfin er brýn og með þessu fjárfestum við jafnframt í framtíðinni“ segir Alma.

Geðheilsumiðstöð barna sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Þetta er jafnframt sú stofnun sem oftast framkvæmir mat vegna gruns um ADHD og/eða vegna gruns um röskun á einhverfurófi. Þjónusta miðstöðvarinnar fer fram í fjórum teymum. Tvö þeirra sinna ráðgjöf og meðferð og tvö greiningum. Í meðferðarteymunum tekst að mestu að halda viðmiðum embættis landlæknis um biðtíma. Í greiningarteymunum er biðtíminn lengri, eða að meðaltali 24 til 34 mánuðir. Lengst er biðin eftir mati á einkennum einhverfurófs enda liggur mikil vinna og tímafrek að baki þeim greiningum.

Unnið hefur verið að ýmsum úrbótum hjá GMB til að stytta biðtíma eins og kostur er, m.a. með breytingum á verklagi. Þrátt fyrir að breytingarnar hafi skilað árangri hefur biðtíminn ekki styst þar sem eftirspurn eftir þjónustu og þörf fyrir greiningar eykst stöðugt. Það er því ljóst að fjölga þarf stöðugildum, en þau hafa verið óbreytt frá árinu 2022.

„Stjórnendur GMB eru þakklátir fyrir stuðning heilbrigðisráðherra með þessari aukningu í stöðugildafjölda og að sýna málaflokknum skilning. Það er mikilvægt að stytta biðtíma barna og fjölskyldna þeirra og stuðla þannig að auknum lífsgæðum þeirra“. segir Linda Kristmundsdóttir, forstöðumaður Geðheilsumiðstöðvar barna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Stórbruni í Hafnarfirði

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?