• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Elly snýr aftur vegna fjölda áskorana! – ,,Fimm stjörnu meistarastykki“

Söngleikurinn um Elly sló í gegn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. mars 2025
in Afþreying, Innlent
A A
0

Eftir hreint ótrúlegar viðtökur kvaddi hinn margrómaði söngleikur um ævi Ellyjar Vilhjálms sviðið nýverið. Sýningin sló öll met í aðsókn, þau ár sem hún var sýnd fyrir fullum sal í Borgarleikhúsinu og naut fádæma vinsælda.  

Söngleikurinn um Elly hefur verið svo vinsæll undanfarin ár að Katrín Halldóra varð að koma aftur á Stóra sviðið sem Elly Vilhjálms eftir að fyrra tímabili sýningarinnar lauk. Aðsóknin var slík að rómaðri sýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir handriti Gísla og Ólafs Egils Egilssonar.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir fór með hlutverk Ellyar í sýningunni og leikur hennar var hreint út sagt frábær og fékk allar mögulegar stjörnur fyrir bæði söng og leik og í raun var eins og Elly og Raggi Bjarna stæðu á sviðinu. Því bæði Katrín Halldóra og Björgvin Franz Gíslason sem leikur Ragga Bjarna heitinn, í sýningunni, voru stórkostleg.

Björgvin Frans túlkaði stórkostlega alla takta Ragga Bjarna og beitti þeim af einstakri snilld. Björgvin Frans átti stórleik í þessari sýningu og var það mat Fréttatímans og leikhúsgesta sem rætt var við, að í sýningunni sáu áhorfendur persónulegan leiksigur Björgvins Frans.

Leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson fær sérstakar þakkir fyrir frábæra leikstjórn og sýninguna sem hefur slegið öll met og var fimm stjörnu meistarastykki.

Með önnur hlutverk fóru þau Björn Stefánsson, Hjörtur Jóhann Jónsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir sem skiluðu öll sem eitt, hlutverkum sínum af mikilli snilld og fágun enda mjög reyndir og góðir leikarar.

Um Elly

Raggi Bjarna söng í síðasta sinn með Elly (Katríu Halldóru) á lokasýningunni, skömmu áður en hann féll frá.

Elly bjó yfir óræðri dulúð og töfraði áhorfendur með söng sínum og leiftrandi persónuleika; túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin silkimjúk og hlý. Líf Ellyjar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara því hún var dul og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna.

Í þessari mögnuðu sýningu fetaði Katrín Halldóra í fótspor einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar og syngur sig inn í hjörtu áhorfenda sem aldrei fyrr.

,,Fimm stjörnu meistarastykki“

Svo vel gekk að sýningin sló áhorfendamet í Borgarleikhúsinu í júní árið 2019, en hún var frumsýnd þann 18. mars 2017. Áhorfendafjöldinn var þá 104.446 að lokinni lokasýningu.

Fréttatíminn gaf sýningunni og öllum sem að henni stóðu, fimm stjörnur af jafn mörgum mögulegum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    220 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?