• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

1.400 nýjar leiguíbúðir á lágu verði – Verð frá 96.000 og 4ja herb. íbúðir á 146 til 200 þúsund

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júlí 2018
in Óflokkað
A A
0

Áætlanir um leiguverð íbúða Bjargs 

Bjarg íbúðafélag mun byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum og er félagið nú þegar með tæplega 238 íbúðir í byggingu og um 430 í hönnunarferli. Stefnt er á að fyrstu íbúðir verði afhentar um mitt ár 2019.
Leiguverðið
Bjarg hefur gert áætlanir um leiguverð fyrir íbúðir félagsins á Móavegi, Urðarbrunni og Akranesi. Áætlun um leigu miðast við verðlag 2018 og áætlanir félagsins um byggingakostnað, vaxtakostnað og kostnað vegna rekstur fasteignanna. Leiguverð verður gefið út þegar íbúðir verða fullbúnar og mun það taka mið af endanlegum byggingarkostnaði. Vextir á langtímafjármögnun mun einnig hafa mikil áhrif á leiguverð en fjármagnskostnaður mun ekki liggja fyrir fyrr en íbúðir fara í leigu.
Félagið mun á líftíma eignanna stöðugt leitast við að lágmarka vaxta- og rekstarakostnað og mun skila öllum ávinningi til leigutaka.
Við hönnun íbúða Bjargs var leitast við að ná góðri nýtingu á íbúðarfermetrum og með færri fermetrum getur félagið boðið lægra heildarleiguverð til leigutaka. Það er m.a. gert með því að nýta ný ákvæði í byggingareglugerð varðandi stærðir rýma og útfærslur á geymslum.
Stefnt er á að allir fermetrar nýtist og séu innan íbúðar en liggi ekki að hluta til í geymslum í kjallara eins og algengt er. Meðalstærð tveggja herbergja íbúðar er um 45 fermetrar, þriggja herbergja íbúð er um 70 fermetrar og fjögurra herbergja íbúð um 85 fermetrar.
Leiguverð eigna félagsins verður misjafnt milli staðsetninga en þar hefur lóðaverð töluverð áhrif ásamt skipulagsskilmálum og þá hvernig þeir styðja við byggingu hagkvæms húsnæðis.
Áætlað leiguverð 2ja herbergja íbúðar er frá 96 þúsund til 130 þúsund miðað við rekstrarforsendur og verðlag 2018. Greiðslubyrgði leigu miðað við lágmarkslaun gæti orðið frá 55.000 fyrir einstakling þegar tekið er tillit til húsnæðisbóta.
Áætlað leiguverð á 3ja herbergja íbúðar er frá 128 þúsund til 169 þúsund miðað við rekstrarforsendur og verðlag 2018. Greiðslubyrgði leigu miðað við lágmarkslaun gæti orðið frá 90.000 fyrir hjón/par með eitt barn þegar tekið er tillit til húsnæðisbóta.
Áætlað leiguverð á 4ja herbergja íbúðar er frá 146 þúsund til 200 þúsund miðað við rekstrarforsendur og verðlag 2018. Greiðslubyrgði leigu miðað við lágmarkslaun gæti orðið frá 99.000 fyrir hjón/par með 2 börn þegar tekið er tillit til húsnæðisbóta.
Bjarg mun einnig bjóða stúdíó íbúðir og mun leiguverð verða um 15% lægra en 2ja. herbergja íbúða. Það fer þó eftir stærð íbúða sem getur verið misjöfn eftir verkefnum. Þá mun félagið bjóða 5 herbergja íbúðir sem verða um 100 fermetrar að stærð. Áætlað leiguverð þeirra verður um 12% hærra en 4. herbergja íbúða. Ljóst að greiðslubyrði 5 herbergja íbúða verður hlutfallslega hærra en smærri íbúða að teknu tilliti til húsnæðisbóta þar sem núverandi reglugerð gerir að hámarki ráð fyrir 4 heimilismönnum.
Umsókn í tveimur skrefum
Opið er fyrir skráningu á biðlista hjá Bjargi og fer hún fer fram rafrænt á www.bjargibudafelag.is. Áhugasamir skrá sig á biðlista óháð hvaða eign er verið að sækja um. Nöfn þeirra sem skrá sig fyrir 31. júlí fara í pott sem verður dregið úr um númer á listanum. Eftir þann tíma fá umsækjendur númer í þeirri röð sem skráningar berast. Íbúðir verða auglýstar til leigu í áföngum og mun þá verða hægt að sækja um ákveðnar staðsetningar. Staða á biðlista ræður til um úthlutun.
—–
Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Salmonella í fæðubótarefni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Stórbruni í Hafnarfirði

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?